Landsliðsmaðurinn Guðmundur Kjartansson (2458) vann í lokaumferðinni á Northumbria Masters Í Newcastle, Englandi. Guðmundur var stigahæstur af 28 keppendum en hann var einn af þremur stórmeisturum á mótinu. Aðrir stórmeistarar á mótinu voru Englendingar Keith Arkell (2373) og Danny Gormally (2447).
Guðmundur mætti FM David J Walker (2253) í lokaumferðinni. Keith Arkell með hvítt gerði stutt jafntefli við Danny Gormally sem þýddi að Guðmundur hafði möguleika á að ná honum að vinningum með sigri. Skemmst er frá því að segja að Guðmundur vann með svörtu og náði þar með að skipta toppsætinu með Gormally. Flottur árangur hjá Gumma.
Guðmundur og Gormally enduðu með 7 vinninga af 9 mögulegum og voru báðir taplausir. Þrátt fyrir sigur á mótinu tapar Guðmundur 5 elóstigum og helgast það eiginlega alltaf af því að ungur og greinilega „underrated“ Indverji náði jafntefli gegn Gumma fyrr í mótinu.















