Mikið var um óvænt úrslit í þriðju umferð í Áskorendaflokki Skákþings Íslands. Á sjö efstu borðunum vann sá stigahærri aðeins tvær skákir. Eftir þrjár umferðir eru þeir Jóhann Ragnarsson og Benedikt Þórisson mjög óvænt efstir og jafnir með þrjá vinninga!
Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson er stigahæstur 36 keppenda. Titilhafar auk Braga eru IM Davíð Kjartansson, CM Bárður Örn Birkisson og svo landsliðskonurnar WIM Olga Prudnykova og WGM Lenka Ptacnikova.

Í 3. umferð mættust á efsta borði þeir Mikael Jóhann Karlsson (2127) með hvítt og Bragi Þorfinnsson (2394). Bragi sóttist eftir frumkvæðinu með svörtu mönnunum mjög snemma og virtist fá það. Úr varð mjög óræð staða sem erfitt er að meta eða skilja en Bragi hafði hættulegt frípeð á d-línunni og snerist eiginlega miðtaflið um það hvort Bragi næði að halda því eða Mikael stríða peðinu með því að sækja að því. Í flóknu tafli þráléku keppendur og jafntefli niðurstaðan.
Á öðru borði tefldu Jóhann Ragnarsson og Bárður Örn Birkisson. Jóhann tefldi eina lengstu skák síðustu umferðar, hádramatíska viðureign gegn Arnari Milutin. Hann hefur kannski viljað útkljá þessa skák með hraði því hann lagði alla spilapeningana á borðið snemma tafls.
12.Rxf7!?? stenst ekki ströngustu kröfur tölvuforrita en Jóhann fékk athyglisverða stöðulega pressu fyrir manninn. Hvítur fékk langvarandi leppun á 7. reitaröðinni en Bárður hefði getað forðast það með sterkum leik í 16. leik, 16…g5! Bárður missti vafalítið af fleiri tölvuleikjum en á endanum fékk Jóhann mikla stjórn á stöðunni þrátt fyrir að vera enn manni undir. Bárður fékk þó góðan séns á að taka jafnteflið hér.
Hér getur svartur þráleikið 31…Ha8! og elt svo hrókinn þar sem að ef riddarinn á e7 afleppast kemur …Rg6 og mát! Þess í stað kom 31…Hd1?? og hvítur stendur til vinnings eftir 32.e4!
Jóhann sigldi svo vinningnum heim enda orðinn þremur peðum yfir í hróksendatafli þegar hann vann manninn til baka!
Önnur óvænt úrslit urðu á þriðja borði. Þar leiddu saman hesta sína landsliðskonan Lenka Ptacnikova (2139) og hinn efnilegi Benedikt Þórisson (1851).

Lenka beitti hinu vinsæla Jobaava-London. Benedikt tefldi miðtaflið hressilega og gaf peð fyrir mjög hættuleg sóknarfæri. Menntuð taflmennska sem gaman er að sjá. Ungir skákmenn eru oft of materíalískir á kostnað stöðunnar en Benedikt sneri dæminu við. Hann fékk mjög hættuleg færi og hér fann hann besta leikinn.
24…Rg4! skilur hrókinn eftir í dauðanum en það er ljóst að hann má ekki taka þar sem drottningin getur ekki forðað sér á sama tíma og hvítur þarf að verjast mátinu á h2. Hér fór dýrmætur tími af klukkunni hjá Lenku en líklega var of seint að koma við vörnum og sókn Benedikts rúllaði stjórnlaust áfram og sanngjarn vinningur í hús. Vel gert hjá TR-ingnum unga.

Það er nokkuð ljóst að Andrey Prudnikov (2036) er mun sterkari en stig hans gefa til kynna. Hann sameinaði þéttan pósa og taktík á réttum stöðum til að næla sér í góðan punkt gegn Birni Hólm Birkissyni (2097).

Maraþonskák umferðarinnar var aftur hjá Arnar Milutin Heiðarssyni (2109). Í gær tapaði hann erfiðri skák gegn Jóhanni Ragnarssyni og í 3. umferðinni tapaði hann aftur, nú gegn landsliðskonunni Olgu Prudnykovu (2268). Tefld var teóría í Grunfeld en Arnar var fyrri til að breyta útaf með 10.Rg5?! sem líklegast ekki góð nýjung. Olga hefði mögulega getað refsað með 10…Da5! en lék þess í stað 10…0-0 og taflið hélt áfram.
Hér kom mikilvægt augnablik. Olga lék 17…Ra4?? sem hefði getað snúið taflinu algjörlega Arnari í vil. Þess í stað var 17…Df5! mun betra á svart. Skákir á b1 og mögulegt vesen á f-línunni gerir hvítum mjög erfitt fyrir. Eftir gerðan leik hefðu kaup á d5 og svo Kd2 verið mjög vænlegt á hvítt. Arnar víxlaði röðinni og lék 18.Kd2? fyrst.
Olga fékk nú mjög vænlegt tafl, fékk peðið á f2 og fórnaði svo skiptamun til að fá þrjú samstæð frípeð. Fórnin svosem óþarfi en taflið eftir sem áður líklegast unnið á svart.
Svartur náði að skipta niður í unnið peðsendatafl.
Olga lék hér 44…a5 sem er ennþá unnið en 44…Kxg4 var öruggara þar sem svartur vekur upp á e1 með skák ef hvítur leikur e4 í kjölfarið. Svartur hélt unnu drottningarendatafli tveimur peðum yfir allt þar til…
Hér lék svartur 62…g4?? og nú er staðan jafntefli samkvæmt ströngustu fræðum. 62…Df4 hefði haldið unnu endatafli. Arnar drap að sjálfsögðu á a4, 63.Kxa4 og nú þurfti svartur á öllum sínum kröftum að halda! Sem betur fer fyrir Olgu eru drottningarendatöfl fáranlega erfið og eftir 63…g3 varð hvítur að finna annaðhvort 64.Ka5 eða 64.Kb5 til að halda jafntefli. Arnar gerði það ekki og eftir þennan tímapunkt er endataflið alltaf tapað. Tæknin sem þarf til að vinna það er þó ansi erfið og á tíma virtist stutt í þráskák en Olga hafði þetta á seiglunni.

Gauti Páll Jónsson (2055) hafði svart gegn þáttastjórnandanum Kristjáni Erni Elíassyni (1758). Gauti jafnaði taflið nokkuð auðveldlega þar sem hvítur valdi nokkuð meinlausa línu þar sem svartur nær d5-framrásinni. Þar með er ekki öll sagan sögð því jú auðvitað þarf að tefla taflið. Gauti fékk eitthvað frumkvæði en eftir að staðan einfaldaðist var það líklegast bara hvítur sem gat reynt að tefla til vinnings. Gauti bauð því jafntefli áður en það væri of seint og Kristján þáði það.
Ingvar Wu Skarphéðinsson vann með svörtu gegn Mikael Bjarka Heiðarssyni. Tveir efnilegir skákmenn þar á ferð.
Ingvar fann skemmtilega taktík í miðtaflinu eftir 16.f3?? hjá hvítum sem veikir stöðuna of mikið. Munið orð stórmeistarans Benjamin Finegold! 16…Bxd5! og taktíin á e3 gefur svörtum nánast vinningsstöðu.
„Never play f3!“

Gríski skákmaðurinn Athanasios Mistilioglou (1582) virðist mun sterkari en stigin segja til um. Hann lagði barnalækninn Ólaf Gísla Jónsson (1790). Grunnurinn að sigrinum var smekkleg taktík í miðtaflinu.
14.Rxc6 Dxc6 15.Bxf6! Bxf6 16.Be4 og skiptamunur af hjá svörtum.
Úrslit:

Hægt er að nálgast skákir 3. umferðar inni á lichess hér. Einnig hægt að hala niður 3. umferð á PGN hér. Beinar útsendingar eru bara á LiveCloud (sjá link að neðan) en skákir eru settar inn á lichess eftirá.
Í 4. umferð sem fer fram á morgun klukkan 18:30 mætast Benedikt Þórisson og Jóhann Ragnarsson í vægast sagt óvæntu toppuppgjöri! Morgunljóst er að hart verður barist á öllum borðum og baráttan um efstu tvö sætin gæti orðið grjóthörð!

Teflt verður á hverjum degi næstu daga um tvö sæti í landsliðsflokki að ári. Umferðir um helgar byrja 13:00 en á virkum dögum 18.30. Oddastigaútreikningur* ræður lokaröð sæta.

- Mótið á Chess-Results.
- Beinar útsendingar
- Lichess
- Frétt með praktískum atriðum, verðlaun, oddastig o.fl.















