Bárður Örn Birkisson vann enn eina skákina í A-flokki Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur. Lýsingarorðin til að lýsa árangri Bárðs eru við það að tæmast. Sjöunda sigurskákin í röð kom í hús í gær og fullt hús hjá heitasta skákmanni landsins!

Staðan fyrir umferðina var svona:

Bárður hafði 6 vinninga og eiginlega bara Stefán vinningi á eftir með raunhæfa möguleika á að ná í afturendann á Bárði.

Til að gera atlögu að Bárði varð Stefán eiginlega að ná í sigur í sjöundu umferð. Andstæðingur hans….jú tvíburabróðir Bárðs! Björn Hólm fékk betri stöðu úr byrjuninni en náði ekki fullkomlega að gera sér mat úr því. Stefán hélt sér inni í skákinni og fékk svo aðeins betra endatafl en aftur, ekki nóg til að gera atlögu að vinning. Jafntefli niðurstaðan.

Stigahæsti skákmaður flokksins, landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr var 1,5 vinningi á eftir Bárði. Hilmir þurfti augljóslega og nauðsynlega á sigri að halda með svörtu til að eiga einhverja möguleika.

Byrjanavalið gaf það sterklega til kynna að Hilmir ætlaði að tefla til vinnings. Haraldur er hinsvegar grjótharður með hvítu og gaf lítið eftir. Það var ekki fyrr en vel norðan við þrjátíu leikina sem að Hilmir fór að slíta sig frá Haraldi, vann peð og náði að kreysta vinning úr stöðunni.

Því miður fyrir Stefán og Hilmi þá gaf Bárður ekkert eftir í sjöundu umferðinni. Teflt var Glek-kerfið í fjögurra riddara tafli og snemma tafls fékk Bárður tölvumat yfir eitt peð, s.s. +1. Þetta mat hélst eiginlega út skákina og Bárður fylgdi því eftir í endatafl þar sem hann hafði peði yfir og gerði sér að sjálfsögðu mat úr því. Bárður er að tefla eins og herforingi og verður athyglisvert að sjá hvar hans þak í skákinni er! Hann er að lágmarki að tefla eins og FIDE meistari og á mögulega að stefna hærra, hratt!

Þær skákir sem eftir eru skiptu kannski litlu í toppbaráttunni en höfðu mikið að segja í baráttunni um að verða skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur. Gauti hafði hvítt gegn Lenku og virtist eiginlega fá upp stöðu sem hvítur fær í 3.Bd3 afbrigðinu gegn Frakkanum en hann fékk hana gegn Sikileyjarvörn Lenku.

Gauti fór líklega of snemma í þvingandi aðgerðir og reyndi að búa til eitthvað úr engu. Lenka fann gott andsvar og svartur vann lið og fékk mun betra tafl.  Betra taflið kom þó á kostnað tímans og Lenka átti aðeins 8 mínútur á klukkunni eftir að hafa leikið 20 leikjum. Lenka fékk vissulega unnið tafl á borðinu, líkt og á Íslandsmóti kvenna í gær en aftur var komið ákveðið sjálfsskaparvíti á klukkunni og mikið tímahrak.

Gauti hélt haus og nægilegri pressu á borðinu til að ná sér í jafntefli.

Þessi úrslit opnuðu dyrnar fyrir Ingvar Wu að ná forskoti á Gauta í baráttunni um skákmeistara Taflfélags Reykjavíkur. Ingvar fékk mjög flotta Benoni stöðutýpu og stóð eiginlega til vinnings í 22. leik, peði yfir og með mjög hagstæða Benoni stöðu.

Drottningarkaup svarts í miðtaflinu voru ekki góð og skyndilega var Jóhann kominn af fullum krafti aftur inn í skákina. Eftir að Ingvar vann b-peð hvíts stóð svartur til vinnings. Raðtækni svarts gekk að mestu upp þar til í riddaraendataflinu.

64…Rxf4?? var skelfilegur afleikur og eftir 65.Kf3 Re6 á hvítur auðvelt jafntefli með 66.Rxd4 og hvíti kóngurinn fer svo í h-peðið. Einhver þreyta sagði hér til sín hjá Jóhanni og hann lék þess í stað 66.h4?? og nú á svartur unnið tafl sem Ingvar nýtti sér og náði í mikilvægan vinning.

Flottur sigur hjá Bárði enn eina ferðina og líklega er hann kominn langleiðina með að tryggja sigur á mótinu.

Bárður hefur 1,5 vinnings forskot á Stefán. Hinsvegar ef að Bárður gerir jafntefli við bróður sinn Björn í 8. umferðinni og Stefán vinnur sína skák þá gæti Stefán náði Bárði að vinningum með sigri í innbyrðis skák í lokaumferðinni. Hilmir heldur í sömu von og þarf að vinna gegn Gauta og Jóhanni á meðan til að halda í vonina um að ná Bárði að vinningum.

Í áttundu umferð mætir Björn Hólm tvíburabróður sínum Bárði en á sama tíma fær Stefán hvítt á Ingvar Wu og Hilmir hvítt á Gauta Pál.

Opinn flokkur

Jóhann Ragnarsson vann sigur á efsta borði gegn Sverri Sigurðssyni. Benedkt náði að kreysta fram sigur gegn Mikael Bjarka í áhugaverðu endatafli þar sem Benedikt hafði drottningu og riddara gegn drottningu og peði Mikaels. Svínslegur svíðingur en mikilvæg úrslit fyrir Benedikt.

Staðan er því svona:

Jóhann er efstur með 6 vinninga en hann mætir Benedikt í 8. umferðinni. Benedikt er á hörku siglingu og verður gaman að sjá hvort hann nær í úrslit gegn Garðbæingnum reynda í næst síðustu umferðinni.

Mikael Bjarki, Jóhann Jónsson og Adam þurfa allir að ná í sigur til að berjast um efsta sætið.

Teflt er í skákhöllinni í Faxafeni 12. Umferðir hefjast 18:30 á virkum dögum en 13:00 um helgar.

- Auglýsing -