Félagarnir og landsliðsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson og Hilmir Freyr Heimisson voru í algjörum sérflokki á Atskákmóti Reykjavíkur sem lauk í gær í húsakynnum Taflfélags Reyjavíkur. Í umferðunum níu gerðu þeir aðeins jafntefli innbyrðis og lögðu alla aðra andstæðinga sína að velli.

8,5 vinningur af 9 hjá þeim félögum og voru þeir auk þess jafnir á öllum oddastigum. Vignir er hinsvegar Atskákmeistari Reykjavíkur þar sem hann teflir fyrir Skákdeild KR.

Jóhann Ingvason og Bragi Halldórsson hlutu 6 vinning í 3-4. sæti.

Einstaklingsúrslit og heildarúrslit er hægt að nálgast á Chess-Results

 

 

 

Atskákmeistarar Reykjavíkur frá upphafi.

- Auglýsing -