Sigurganga Magnus Carlsen hélt áfram í gær þegar hann varð heimsmeistari í hraðskák í hvorki meira né minna en sjöunda skiptið! Þetta var alls sautjándi titill Carlsen ef kappskák, atskák og hraðskákmótin eru talin saman.

Seinni keppnisdagurinn í Samarkand í Úzbekistan hófst með sex skákmenn jafna í efsta sæti. Fyrri keppnisdagurinn var litaður af riddara-jafnteflis-skandalnum hjá Dubov og Nepo en þeir voru hálfum vinningi á eftir efstu mönnum, hálfa vinningnum sem var sviptur af þeim fyrir riddaraskrípaleikinn hjá þeim.

Carlsen hóf seinni keppnisdaginn illa. Hann tapaði fyrir Maxime Vachier-Lagrave (MVL). Sá franska tókst sem Caruana mistókst ítrekað í heimsmeistaraeinvígi sínu við Carlsen…að brjóta niður Sveshnikov-afbrigðið í sikileyjarvörn. MVL vann sanngjarnan og öruggan sigur, fórnaði skiptamun og sigldi peðameirihluta sínum á drottningarvæng í örugga höfn.

Þetta tap virtist vekja Magnus. Þetta reyndist í raun eina tap Magnus Carlsen í Úzbekistan í 13 atskákum og 21 hraðskák. Eitt tap í 34 skákum! Við tók sex skáka sigurhrina hjá Carlsen þar sem hann lagði: Sarana, Erigaisi, Indjic, Yu, Duda og Rapport! Vladislav Artemiev hafði tekið forystuna snemma á degi tvö en óvænt tap gegn Indjic setti strik í reikninginn og Magnus náði aftur forystu.

Magnús átti fína spretti á sex skáka sigurgöngunni. Gegn Sarana fórnaði hann snemma skiptamun

12.Hxb7 Rxb7 13.e5! og hvítur stóð mun betur. Skiptamunsfórn sem minnir um margt á frægt fórn Kasparovs gegn Shirov á b7 í Sveshnikov.

29….Rxc3 30.Hxc3 Bxg2! afgreiddi Indjic

Yu Yangyi er oft erfitt að brjóta niður. Carlsen tókst það með því að nýta hættulegt c-peð sitt.

25.a4! Rxa4 26.c4!! dxc4 27.Hxd8 Hxd8 28.c7 og hvítur stendur til vinnings.

Skákin gegn Duda var svo „klassískur“ Carlsen sigur þar sem eitthvað var kreyst úr nánast engu, sjón er sögu ríkari:

Carlsen var með hálfan vinning í forskot en gat engu að síður leyft sér að gera jafntefli í lokaumferðunum tveimur. Kaldhæðni örlaganna stilltu Dubov upp í öðru sæti, hálfum vinningi á eftir Carlsen…þessum hálfa vinning sem hann var sviptur gegn Nepo.

Árangurinn hjá Carlsen er ótrúlegur, hann tekur aftur tvennuna þ.e. vinnur heimsmeistaramótið í atskák og hraðskák. Hann hlaut 16 vinninga í 21 skák í hraðskákinni, árangur sem samsvarar 2861 hraðskákstigum…Magnus lækkar því um 1,5 hraðskákstig fyrir þennan árangur! Enn virðist nokkuð í að einhver af yngri kynslóðinni fari að skáka Carlsen eitthvað til að ráði.

Viðtal Carlsen við Chessbase India:

Kvennaflokkur

Valentina Gunina vann kvennaflokkinn. Hún var komin í kjörstöðu eftir fyrri keppnisdaginn og hélt forystu allt mótið. Á tíma hafð hún tvo vinninga í forskot, það minnkaði í einn vinning en var svo komið aftur í 1,5 vinning þegar lítið var eftir. Alexandra Kosteniuk átti góðan endasprett og komst hálfum vinningi á eftir Guninu en nær komst hún ekki, Gunina hélt dampi í lokin og vann með 14 vinning af 17, tapaði aðeins einni skák.

Sigurinn skipti Guninu greinilega miklu máli og tilfinningarnar voru miklar að móti loknu!

Öll útsending seinni dagsins:

- Auglýsing -