Svörtu mennirnir reyndust drjúgir í þriðju umferð Íslandsmóts öldunga (65+) sem fram fór í Siglingaklúbbnum Ými í Kópavogi í kvöld. Eftir umferðina eru Ögmundur Kristinsson og Bragi Halldórsson líklegastir í baráttunni, báðir efstir með 2,5 vinning.

Ögmundur var fyrstur að klára góða skák gegn Björgvin. Hlutirnir fóru að gerast í miðtaflinu eftir 16.Re5? sem var slakur.

Ögmundur fann rétt leikinn 16…Rxe5! en þá kom annar slakur leikur 17.Bxc8? (17.dxe5 var skárra) eftir 17…Hxc8 hefur Björgvin líklegast misst af því að 18.dxe5 er svarað með 18…d4 og svartur stendur betur. Nú var orðið of seint að laga mistökin og Ögmundur hafði tvo menn fyrir hrók og alla stöðuna.

Ögmundur vann vel úr yfirburðunum og náði í mikilvægan sigur á ríkjandi Íslandsmeistara öldunga.

Bragi Halldórsson náði að halda í við Ögmund með því að leggja Þór að velli með svörtu. Þegar Bragi náði …d4 framrásinni í miðtaflinu var svartur með alla stöðuna

Enn einn sigurinn náðist á svart þegar Kristján Örn lagði Pál G. Jónsson að velli. Kristján vann lið í miðtaflinu og eftirleikurinn nokkuð auðveldur.

Allar skákirnar unnust á svart eins og áður sagði og staðan í raun 5-1 fyrir svörtu mennina á mótinu!

Staðan:

Bragi og Ögmundur virðast ætla að berjast um titilinn. Þeir mætast í 4. umferð þar sem Bragi hefur hvítt. Fjórða umferðin er hinsvegar ekki fyrr en á laugardag þar sem hlé verður á flokknum á fimmtudag og föstudag þegar Íslandsmót 50+ fer fram í Faxafeninu!

Úrslitin ráðast því um helgina!

- Auglýsing -