Þriðja umferð á Íslandsmóti kvenna fór fram í kvöld í Siglingaklúbbnum Ými. Hurð skall nærri hælum hjá efstu keppendum en þær Olga Prudnykova og Lenka Ptacnikova komust í gegum sínar skákir með sigri en litlu mátti muna!

Elsa var fyrst til að klára sína skák gegn Iðunni. Iðunn var með fína stöðu en fór of snemma í að „reyna að gera eitthvað“ með 17…Rd5? sem hentaði hvítu stöðunni mun betur og Elsa tók yfirhöndina og lét hana ekki af hendi.

Jóhanna vann nokkuð auðveldlega gegn Guðrúnu sem lék skelfilega af sér með 9…h5?? og lefyði 10.Dc8+ og staðan hrundi.

Olga náði góðum „svíðing“ í gær gegn Elsu í hróksendatafli og hún endurtók leikinn í dag gegn Tinnu. Heilt yfir engan veginn slæm skák hjá Tinnu og erfitt að benda á hreinan afleik. Olga einfaldlega sýndi æðri endataflstækni og nýtti sér aðeins virkari menn.

Hurðin skall nokkuð nálægt hjá Olgu en hún var komin í einhverja millimetra hjá Lenku gegn Veroniku. Veronika tefldi mjög fína skák og var með fína stöðu í meira og minna 40 leiki og féll gullið tækifæri í 42. leik eftir mistök hjá Lenku

Hér hefði 42.Bxh6 Kxh6 43.Df6! líklega dugað til vinnings. Erfiði parturinn er að gefa g4 peðið með skák eftir 43…Dxg4+ 44.Kh2 þar sem hótunin He5-e3-h3 er óverjandi. Þess í stað komu nokkrir slakir leikir og Lenka tók smátt og smátt yfir.

Engin jafntefli í umferð dagsins og Lenka og Olga halda sínu striki.

Staðan:

Olga og Lenka líklegastar en Jóhanna heldur sínum möguleikum opnum, einum vinningi á eftir.

Fjórða umferðin af sjö fer fram á morgun og hefst klukkan 18:00. Teflt er á hverjum degi og mótinu lýkur á sunnudaginn.

 

- Auglýsing -