Fjórða umferð Íslandsmót kvenna hefst kl. 18 í dag. Frí er hjá öldungunum (65+) í dag og á morgun. Hins vegar hefst Íslandsmót 50 ára og eldri í dag þar sem teflt í skákhöllinni Faxafeni 12. Þar taka þátt meðal annars fjórir FIDE-meistarar

Íslandsmót kvenna

Olga og Lenka eru efstar með fullt hús. Jóhanna Björg, sem hefur 2 vinninga, er líka í baráttuni. Þær mætast ekki innbyrðis í dag.

  • Olga (3) – Veronika (1)
  • Guðrún Fanney (1) – Lenka (3)
  • Jóhanna Björg (2) – Elsa María (1)
  • Iðunn (1) – Tinna Kristín (0)

Íslandsmót 50 ára og eldri

Íslandsmót 50 ára og eldri hefst í dag. Tefldar eru atskákir. Mótið er haldið í fyrsta skipti í 10 ár en þá stóðu Einar Ess og félagar fyrr mótinu.

27 keppendur eru skráðir til leiks og þar á meðal fjórir FIDE-meistarar. Íslandsmeistarinn núverandi, Guðmundur Gíslason, er meðal þeirra. Ver hann titilinn?

Fjórir umferðir fara fram í kvöld. Mótinu lýkur með fimm umferðum á morgun.

 

- Auglýsing -