Olga Prudnykova  hélt áfram sigurgöngu sinni í fjórðu umferð á Íslandsmóti kvenna sem fram fer Siglingaklúbbnum Ými. Olga vann sína skák gegn Veroniku Steinunni Magnúsdóttur og hefur fullt hús en hennar helsti keppniautur Lenka Ptacnikova, þrettánfaldur Íslandsmeistari, missti óvænt niður jafntefli gegn hinni ungu og efnilegu Guðrúnu Fanney Briem. Jóhann Björg Jóhannsdóttir hélt sínum vonum á lífi með seiglusigri gegn Elsu Maríu Kristínardóttur. Skák Iðunnar og Tinnu var frestað til morguns.

Olga náði skemmtilegu taktísku skoti í byrjuninni.

14.Bxb5! vinnur hreint peð fyrir hvítt. Veronika freistaðist í að reyna að vinna peðið til baka en þá fékk Olga óstöðvandi frumkvæði og var þetta fyrsta skákin til að klárast í umferðinni.

Jóhanna náði að plata Elsu í byrjuninni og vann skipatmun og fékk mjög vænlegt tafl. Elsa fór þá að tafla af krafti og Jóhanna fann ekki bestu leiðina til að klára liðsskipan. Fór svo að Elsa náði að snúa taflinu sér í vil og var skyndilega peði yfir í endatafli og með allan meðbyr með sér.

Jóhanna fór þá að berjast og náði peðinu til baka. Tölvumatið hékk í 0.00 heillengi en Jóhanna náði samt að setja pressu á svörtu stöðuna þrátt fyrir lítinn liðsafla á borðinu.

Elsa missti þráðinn með 70…Hb8?? sem missir skákina í tap. 70…Rg5 71.Kf5 Rh7! heldur jafnteflinu þar sem bæði H+B gegn H og H gegn R er jafntefli og svartur reddar sér. Eftir mistökin kláraði Jóhanna dæmið í nokkrum leikjum.

Hin unga og efnilega  Guðrún Fanney Briem setti svo sannarlega stórt strik í reikninginn í toppbaráttunni.  Guðrún hélt jafntefli gegn Lenku Ptacnikovu með gríðarlegri baráttu. Lenka vann mann í miðtaflinu en Guðrún hafði nokkur peð fyrir og gaf ekki þumlung eftir í vörninni og náði að byggja upp sannkallaðan virkisvegg í endataflinu og engin leið í gegn fyrir Lenku.

Tveir sigrar á hvítt í umferðinni og stórt jafntefli fyrir framvindu mótsins. Iðunn og Tinna tefla sína skák á morgun.

Staðan:

Olga hagnast mest á jafntefli Guðrúnar og Lenku þar sem líklegt er að Olgu nægi nú jafntefli í viðureign Lenku og Olgu sem verður á morgun. Lenka hefur hvítt og þarf sigur til að komast yfir Olgu.

Fimmta umferðin af sjö fer fram á morgun og hefst klukkan 18:00. Teflt er á hverjum degi og mótinu lýkur á sunnudaginn.

 

- Auglýsing -