Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Áfram Helgi Áss Grétarsson mætti í síðasta þátt og fór auðvitað að kostum eins og fyrri daginn. Í kynningu um þáttinn segir:
Í þættinum ræða þeir Íslandsmótið, andstæðinga Helga í mótinu, stöður sem upp komu eða öllu heldur hvernig Helgi undirbjó sig og nálgaðist einstaka skákir sínar allt eftir hver var andstæðingur hans hverju sinni. Helgi ræddi 5 ára planið sem hann setti sér árið 2018, sagði frá Íslandsmeti sínu í blindskák en árið 1997 tefldi hann blindskákafjöltefli við 11 manns og stendur það met enn. Í lokin talaði Helgi um og lýsti aðdáðun sinni á Indverjanum unga Gukesh Dommaraju sem fyrr í mánuðinum sigraði á áskorendamóti FIDE og vann sér þar með réttinn til að tefla við núverandi heimsmeistara í skák, Kínverjann Ding Liren síðar á árinu.
Í nýlegum þáttum má meðal annars finna skemmtilegt viðtal við Björn Þorfinnsson þar sem Íslandsmótið og golfhermar koma við sögu.















