Það var mikið um dýrðir líkt og fyrr á Sumarskákmóti Fjölnis í Rimaskóla sl. fimmtudag. Alls voru það 86 grunnskólanemendur sem mættu til leiks og kepptu um verðlaunasæti eða happadrættisvinning ef lukkan yrði með þeim í liði.

Sumarskákmótið er heilmikil hátíð og hófst stundvíslega kl. 16:00 þegar Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson hóf fjöltefli. Eins og við manninn mælt fylltist strax bekkurinn allan tímann enda heiður fyrir krakkana að fá að tefla við Íslandsmeistarann.

Helgi Áss var heiðursgestur mótsins, flutti ávarp og hvatti krakkana til að gefast aldrei upp – metnaður og ánægja fylgjast altaf að.

Fyrsta leikinn lék Íslandsmeistarinn fyrir Markús Orra Jóhannsson nemanda Háteigsskóla, ábyggilega ansi góðan því þegar upp var staðið í mótslok var Markús Orri einn sigurvegara mótsins ásamt þeim Birki Hallmundarsyni Lindaskóla og hinum unga og stórefnilega Pétri Úlfari Ernissyni Langholtsskóla (f.2015).

Tefldar voru 5 umferðir. Þegar um þetta fjölmennt mót er að ræða og tiltölulega fáar umferðir reynast úrslitin jöfn hvað vinninga varðar.

Flestir þátttakendur komu frá Skákdeild Fjölnis en ánægjulegt var að fá líka marga gesti frá öðrum skákfélögum sem svo sannarlega settu svip sinn á úrslitin eins og efstu sætin gefa til kynna. Rótarýklúbbur Grafarvog gaf þrjá verðlaunagripi til Fjölniskrakka sem náðu bestum árangri í þeim þremur flokkum sem verðlaunað var í. Theódór Helgi Eiríksson eldri flokk, Tristan Fannar Jónsson yngri flokk og Sigrún Tara Sigurðardóttir stúlknaflokki unnu bikarana til eignar. Takk Rótarý fyrir allan ykkar stuðning við Skákdeild Fjölnis öll árin.

Eftir baráttuna við taflborðið var sannarlega vel þegið að fá veitingar, skúffukökuna landsfrægu og safa.

 

Hátíðinni lauk loks með mikilli verðlaunahátíð. Hagkaup, Jói útherji, Bókabúð Grafarvogs og SAM bíóin gáfu verðlaunin sem voru áhugaverð í meira lagi hvort sem um var að ræða miða í bíó, sumarleiktæki, LEGÓ eða Barbí frá Hagkaupum eða 60 fótboltamyndir frá Jóa útherja sem innihéldu helstu stjörnur dagsins í dag.

Helgi Árnason formaður Skákdeildar Fjölnis var mótsstjóri. Gauti Páll var á tölvunni skákstjóri. Jóhann Arnar, Kristján Dagur, Sveinbjörn, Lenka og Arnar Gauti aðstoðuðu við mótshaldið auk allra foreldranna sem fjölmenntu og hjálpuðu til við pörun og allan frágang í lokin. Skákdeild Fjölnis þakkar

 

- Auglýsing -