Fimmta og sjötta umferð fóru fram í dag í Riga þar sem fjórir íslenskir skákmenn tefla á fjögurra daga, átta umferða kappskákmóti í Lettlandi. Stigahæstur íslensku keppendanna er landsliðsmaðurinn Hilmir Freyr Heimisson en ekki langt á eftir honum kemur svo Aleksandr Domalchuk-Jonasson, ferskur frá HM á Indlandi. Bræðurnir Adam og Josef Omarssynir taka einnig þátt á mótinu. Dagurinn var heilt yfir góður, aðeins ein tapskák og alls 5,5 vinningar af átta í dag.

Enginn af íslensku strákunum var í beinni í fimmtu umerð en aðeins fimm efstu borðin eru sýnd beint. Styrktu okkar menn stöðu sína í 5. umferð. Hilmir lagði að velli Reinis Paikens, hemamann með 2242 elóstig, Hilmir hafði svart. Á sama tíma lagði Aleksandr Litháann CM Paulius Juknis (2199) að velli. Josef tefldi einnig við Litháa, Kipras Eigminas (2098) en farnaðist ekki jafn vel og tapaði. Loks gerði Adam jafntefli við Karol Milewski (1824), pólskan skákmann.

Í sjöttu umferð voru bæði Hilmir og Aleksandr mættir í beinar útsendingar. Báðir höfðu þeir 4 vinninga og hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Aleksandr fékk aftur svart og mætti ítalska stórmeistaranum Alessio Valsecchi (2483). Skemmst er frá því að segja að Aleksandr virtist vel undirbúinn í Spánverjanum og lenti aldrei í vandræðum. Ítalinn kaus að þráleika í miðtaflinu og taflið þá hnífjafnt.

Hilmir fékk viðráðanlegri andstæðing, hemamanninn Mikelis Vingris (2142) og hafði auk þess hvítt. Hilmir hafði tögl og haldir framan af skák í Maroczy stöðu með betra rými en svartur hélt sér fast og nýtti sér þegar Hilmir missti aðeins tökin og hrifsaði af honum peð. Upp kom endatafl þar sem Hilmir hefði í raun bara átt að vera að berjast fyrir jafntefli en andstæðingur hans lék niður umframpeðinu og endaði svo í töpuðu biskup gegn riddara endatafli sem Hilmir sigldi heim.

Adam vann sigur í sinni skák í sjöttu umferð gegn Litháanum Bereilis Vanermainas (1707) og Josef bróðir hans gerði jafntefli við Lauma Mierina (1621).

Lokaumferðirnar tvær fara fram á morgun. Fyrir hana er Hilmir í 2-5. sæti en mun mæta Aleksandr Domalchuk-Jonassyni í 7. umferðinni þar sem Aleskandr hefur hvítt. Adam mætir Önnu Kantane (2248) og verður í beinni útsendingu frá skákinni og á Twitch! Josef mætir Eistanum Edek Pegart ( 1616).

- Auglýsing -