Sjöunda umferð Ólympíuskákmótsins hefst núna klukkan 11:00.
Eftir töpin í gær eru íslensku liðin bæði með 3 sigra og 3 töp.
Karlaliðið mætir Tajikistan. Fyrsta borðið hjá þeim er feykisterkt en Faruk Amunatov hefur skorað mjög vel fyrir þá bæði hér og í Baku. Eina tapið hans kom gegn Anish Giri og hann hefur þegar lagt David Navara á þessu móti. Það kemur í hlut Jóhanns að glíma við hann þar sem Héðinn hvílir í dag.
Khusenkhojaev-bræður koma næstir en annar bróðirinn er 200 stigum hærri en hinn og síðustu borðin þeirra mjög stigalág. Þeir komu reyndar á óvart og hvíldu stigahærri bróðurinn þannig að krafan á að vera sigur í dag!

Lenka er enn nokkuð bólgin á ökklanum og ákvörðun var tekin að hún hvíli eina umferð til viðbótar.
Turkmenar eru stigahærri á öllum borðum en íslensku stelpurnar eiga þó að geta staðið vel í hárinum á þeim!

Beinar útsendingar á Skak.is: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Viðureignir dagsins á Chess24: Opinn flokkur | Kvennaflokkur
Mótið á chess-results 7.umferð: Opinn flokkur | Kvennaflokkur















