Ný lög um skák voru samþykkt á Alþingi í dag. Þau fela í sér þá breytingu að núverandi lög um launasjóð stórmeistara og Skákskóla Íslands falla úr gildi 31. janúar 2025. Skipaður verður afrekssjóður í skák sem mun leggja til úthlutanir úr sjóðnum frá og með 1. febrúar 2025.
Í 3. grein segir:
Ráðherra skipar þrjá fulltrúa í stjórn afrekssjóðs í skák til þriggja ára í senn, tvo samkvæmt tilnefningum skákhreyfingarinnar og einn án tilnefningar. Varafulltrúar skulu skipaðir með sama hætti. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi aðalfulltrúa en stjórn skiptir að öðru leyti með sér verkum
Í 5. grein segir:
Styrkir úr afrekssjóði í skák skulu veittir afreksskákfólki og efnilegu skákfólki sem stefnir að alþjóðlegum árangri. Styrkir skulu veittir til skilgreindra verkefna og taka mið af væntum árangri umsækjanda það árið. Styrkjum er úthlutað einu sinni á ári og skulu veittir í þrjá til tólf mánuði í senn. Í undantekningartilfellum er heimilt að veita styrki í styttri eða lengri tíma en þó aldrei lengur en þrjú ár.
Styrkveitingar skulu vera í samræmi við reglugerð sem ráðherra setur, þriggja ára stefnu um úthlutun og áherslur sem ákveðnar eru ár hvert vegna úthlutunar styrkja úr sjóðnum. Til að bæta stöðu og auka möguleika kvenna í skák er heimilt að setja mismunandi skilyrði styrkveitinga fyrir kynin.
Í ákvæði til bráðabirgða
Störf stórmeistara í skák eru lögð niður frá 31. janúar 2025. Um réttindi og skyldur starfsmanna, þ.m.t. um biðlaunarétt, fer samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Stórmeistari í skák, sem gegndi starfi og fékk laun á grundvelli laga nr. 58/1990, nýtur forgangs til styrkja úr afrekssjóði í skák sem veittir verða árið 2025. Ráðherra er heimilt að skipa stjórn afrekssjóðs í skák og gera aðrar ráðstafanir svo fyrsta úthlutun styrkja úr afrekssjóði í skák geti farið fram 1. febrúar 2025.
















