Fjórir Íslendingar taka þátt á HSG Open í Hollandi nú um helgina en mótið fer fram í borginni Hilversum sem er skammt frá Amsterdam. Vignir Vatnar Stefánsson (2492) er stigahæstur íslensku keppendanna en auk hans eru mættir til leiks Hilmir Freyr Heimisson (2388), Dagur Ragnarsson (2333) og Gauti Páll Jónsson (2069) sem er að fara á þetta mót í fimmta sinn!
Tefldar eru sex umferðir, tvær umferðir á dag og voru fyrstu tvær umferðirnar tefldar í dag.
Vignir er fjórði stigahæstur á mótinu og mætti FIDE meistaranum Cesar Becx (2001) í fyrstu umferðinni. Sá beitti 1.f4 í fyrsta leik og tefldi hálfgert „Polar Bear System“ eins og það hefur verið kallað. Sá hollenski veikti sig um of á hvítu reitunum og Vignir nýtti sér það.
Hilmir Freyr mætti Johan Lindeman (1997) og hafði svart. Heimamaðurinn beitti Alapin-afbrigðinu gegn sikileyjarvörn en Hilmir tók yfir í miðtaflinu með betri strúktúr og inngangspunkt á c-línunni. Hilmir vann svo peð og sigldi endataflinu heim.
Dagur tefldi niðurfyrir sig eins og hinir og mætti Nanne van Foreest (1991). Líklegast er hún eitthvað skyld þeim Lucas, Jorden og Machteld en það hjálpaði henni ekki neitt í þessari skák. Peðastaða van Foreest varð of veik of snemma og Dagur vann svo peð með taktík og skákin gat aðeins endað á einn veg.
Gauti Páll var ekki í beinni en hann gerði jafntefli með svörtu við heimamanninn Fleur Westerhof (1904).
Í 2. umferð vann Vignir mjög auðveldan sigur á heimamanninnum William Gijsen (2127). Sá hollenski leyfði frípeð á c6 hjá hvítum í sikileyjarvörn og hvítu reitirnir hans voru auk þess gatasigti með hvítreitabiskup Vignis á d5 reitnum. Kannski lagðist William á sverðið til að sjá leik Hollands og Frakklands en hefði betur sleppt því enda eintóm leiðindi þar á ferð!
Hilmir náði einnig að knésetja sinn andstæðing, Sam Cornelisse (2117). Hilmir þurfti þó að hafa meira fyrir vinningnum en Vignir og fórnaði skiptamun og lengi var ekki ljóst hvort það myndi duga. Þegar a-peð svarts féll og hvíta peðið komst á skrið var þó ljóst í hvað stefndi og Hilmir landaði vinningnum.
Dagur Ragnarsson kláraði „alslemmu“ titilhafanna en hann lagði heimamanninn Vincent Spit. Dagur hafði svart í frakkanum og sókn hans var fyrri til að lenda á drottningarvæng. Það vantaði klárlega að spýta aðeins í lófana hjá andstæðingi hans!
Gauti var ekki í beinni og tapaði sinni skák í 2. umferð gegn Tom van Hoff (1969).
Íslendingarnir hafa allir fullt hús 2 vinninga af 2 en Gauti fer ekki jafn vel af stað og hefur hálfan vinning.
Mótið heldur áfram á morgun, laugardag, með tvöfaldri umferð eins og alla dagana.