Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson gerði jafntefli í þriðju umferð á sterku lokuðu alþjóðlegu móti sem fram fer í Kanada. Maplewood Chess Club Invitational heitir mótið og er feykisterkt! Vignir fór vel af stað á tvöföldum fyrsta degi í gær þar sem hann fékk 1,5 vinning af 2.

Í þriðju umferðinni mætti Vignir heimamanninum og alþjóðlega meistaranum Anthony Atanasov (2407). Vignir hafði hvítt og Atanasov kom honum væntanlega vel á óvart með 4…h6. Furðulegur leikur vægast sagt en þetta er kannski svolítið „nýmóðins“ að leitast eftir því að fá bara skák og forðast teoríu. Ekki þarf að leita lengra en í síðasta heimsmeistaraeinvígi þar sem Ding Liren beitti svipaðri byrjanastrategíu.

Í 2. skák heimsmeistaraeinvígisins hóf Ding taflið með 1.d4 og eftir 1…Rf6 2.c4 e6 3.Rf3 d5 lék Ding Liren 4.h3!? Hér er á ferð 100% biðleikur og tilraun til að forðast að fylgja teóríui of langt inn í skákina.

Segja má að mörgu leiti að leikaðferð Atanasov hafði gengið upp. Upp kom stöðutýpa sem frekar kæmi upp úr Grunfeldsvörn og Vignir virtist aðeins ströggla með að finna gott plan í stöðunni. Atanasov fékk frumkvæði og fékk betra tafl. Staðan var endurtekin þrisvar í miðtaflinu og líklegast var það fyrir bestu eins og taflið þróaðist.

Framundan er tvöföld umferð á morgun. Vignir hefur fyrst hvítt gegn stórmeistaranum Bator Sambuev (2448). Í seinni skákinni hefur Vignir svo svart gegn öðrum heimamanni, alþjóðlega meistaranum Nikolay Noritsyn (2450).

Benda má á að Vignir tók smá samantekt frá fyrsta deginum á VignirVatnar.is.

- Auglýsing -