Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli í níundu umferð í dag á VII Torneo Internacional Jugando con las Estrellas 2024 opna mótinu sem fram fer á Kanaríeyjum. Andstæðingur hans var Vojetch Plat, tékkneskur stórmeistari.

Hannes hafði svart og tefldur var skoski leikurinn. Skákin var meira og minna í jafnvægi allan tímann og jafntefli rökrétt úrslit.

Hannes hefur því 6,5 vinnninga eftir 9 umferðir og situr í 3-8. sæti og enn á á eftir Villagra (7.5/9) og Sumets (7/9). Í lokaumferðinni mætir Hannes efsta manninum, Villagra og hefur svörtu mennina aftur.

Keppendur á mótinu eru alls 120, langflestir spænskir. Titilhafar eru vel yfir þriðja tug og er Hannes númer 6 í styrkleikaröðinni en stigahæstur er Cristobal Villagra (2603) frá Chile. Enska heiti mótsins er „Playing with the Stars“ og tefldar eru 10 umferðir.

- Auglýsing -