Íslensku landsliðsmennirnir eru duglegir að tefla þessa dagana. Guðmundur Kjartansson er nú staddur í Danmörku þar sem hann tekur þátt í lokuðu móti. Mótið hófst í gær og í dag var tefld tvöföld umferð. Guðmundur hefur 2 vinninga að loknum þessum þremur umferðum.
Guðmundur hafði sigur í fyrstu umferðinni gegn alþjóðlega meistaranum Uffe Vinter-Schou (2340) frá Danmörku. Mikið var af mistökum á báða bóga en utan mistaka Guðmundar í 12. leik sem hefðu getað kostað lið voru mistök Danans heilt yfir viðameiri. Guðmundur hafði að lokum sanngjarnan sigur miðað við flæði skákarinnar.
Í 2. umferð sem var fyrri skákin í dag hafði Guðmundur aftur svart gegn þýska alþjóðlega meistaranum Jonas Hacker (2380). Upp kom slavnesk vörn og taflið lengst af jafnt en Guðmundur lenti í smá klemmu í endatafli með þungu mönnunum. Hann náði að vinna sig út úr því og ná góðu jafntefli.
Í seinni skákinni, þriðju umferð mótsins hafði Guðmundur hvítt gegn stigahæsta manninum, Vitaly Kunin (2523). Guðmundur tefldi djarft en Kunin var greinilega staðráðinn í að kæfa niður allt spil og ryksugaði liðið af borðinu og jafntefli varð niðurstaðan þrátt fyrir tilraunir Guðmundar.

Copenhagen Chess Challenge er lokaður GM flokkur með 10 keppendum þar sem tefldar eru 9 umferðir, allir við alla.














