Þriðja umferð á Opna Norðurlandamótinu fór fram í Þrándheimi í Noregi. Þess má reyndar geta að upprunalega heitið á staðnum er Niðarós eins og ritstjórn hefur verið bet á. Umferðin gekk vel, Hjörvar vann sína skák og Olga náði góðu jafntefli.
Hjörvar hafði hvítt gegn Martin Holten Fiskaaen (2225) og upp kom Najdorf afbrigði í Sikileyjarvörn. Vignir beitti sama afbrigði og Vignir og fleiri hafa notað nýlega, Bd3 og Ne2. Hjörvar fékk úr litlu að moða og í raun var sigurinn algjör seiglusigur. Norðmaðurinn gaf ekki eftir fyrr en seint í jöfnu endatafli og Hjörvar náði að trikka andstæðing sinn.
Olga hafði svart gegn sænska alþjóðlega meistaranum Emil Hermansson (2429). Olga var greinilega vel undirbúin og nánast með allan sinn tíma enn á klukkunni þegar hún bauð jafntefli. Emil var greinilega smeykur við undirbúninginn og ákvað að taka boðinu.
Hjörvar hefur svart í fjórðu umferð gegn norska landsliðsmanninum Frode Urkedal (2564) en Olga mætir streymaranum vinsæla og alþjóðlega meistaranum Eric Rosen (2373).
Mótið er tæplega 70 manna alþjóðlega skákmót sem jafnframt er Norðurlandamót í skák. Fjöldi titilhafa tekur þátt og sendir Ísland tvo keppendur til leiks. Hjörvar Steinn Grétarsson, sem var stigahæsti skákmaður Íslands ekki alls fyrir löngu, er fulltrúi okkar ásamt Íslandsmeistara kvenna, Olgu Prudnykovu. Hjörvar er sjöundi í stigaröðinni en framundan er væntanlega spennandi mót. Norðmaðurinn Jon Ludvig Hammer (2596) er stigahæstur keppenda.














