Hannes Hlífar Stefánsson lauk í dag leik á VII Torneo Internacional Jugando con las Estrellas 2024 opnu móti sem fram fór á Kanaríeyjum. Hannes gerði jafntefli við sigurvegara mótsins og stigahæsta skákmann mótsins í umferðinni og átti ágætis möguleika á að valda honum skráveifu.
Hannes hafði svart gegn Cristobal Henriquez Villagra (2603) og teflt var tveggja riddara tafl með 4.Rg5 hjá hvítum. Hannes átti einhver færi snemma úr byrjuninni og tölvurnar eru t.d. mjög hrifnar af svörtu stöðunni eftir 16…e4!? í stað 16…Rf4. Hvítur náði að laga taflið og hanga á umframpeðinu en Hannes náði skiptamun þegar hann var að tapa öðru peði og staðan mjög róleg þegar jafnteflið var samið.
Ágætis mót hjá Hannesi sem endar í 5. sæti á stigum og nældi sér í 7 elóstig á þessu móti.

Cristobal Villagra hafði sigur á mótinu með 8 vinninga.
Keppendur á mótinu voru alls 120, langflestir spænskir. Titilhafar voru vel yfir þriðja tug og var Hannes númer 6 í styrkleikaröðinni en stigahæstur var Cristobal Villagra (2603) frá Chile. Enska heiti mótsins er „Playing with the Stars“ og tefldar voru 10 umferðir.


















