Lenka Ptacnikova náði að klára vel á Summer Prague Open en hún vann sína skák í lokaumferðinni. Sömu sögu er að segja af Adam Omarssyni en Josef Omarsson tapaði sinni skák.

Skák Lenku var í beinni. Hún hafði svart gegn skákmanni frá Liechtenstein, Andrew Heron (1973). Tefld var modern byrjun og komst Lenka nokkuð þægilega í jafnt miðtafl þar sem hún svo yfirspilaði andstæðing sinn.

Lenka fékk þó skemmtilegan séns í 33. leik en fann ekki rétta leikinn í tímahraki. 33…Rxe5 dugði til en 33…Bxe5 hefði verið betri. Ef drepið er með biskup má ekki drepa vegna riddaradráps og svartur hótar fráskák. Fráskákin er líka hótun með biskupinn á e5 en ef hvítur hreyfir hrókinn á e2 kemur …Bb7 og svo …Bd6 og vinnur lið. Leið Lenku vann þó peð og dugði til vinnings.

Adam náði í sigur í sinni skák gegn Úkraínumanninum Mykhailo Vinnyk (1861). Josef varð að lúta í dúk gegn Maltverjanum David Vincenti (2023).

Lenka endaði með 6 vinninga og hafnaði í 30. sæti, nokkuð fyrir ofan stigaröðina. Lenka stóð nokkurn veginn í stað stigalega.

Adam endaði með 5 vinninga og hafnaði í 60. sæti um 20 sætum ofar en styrkleikaröðin. Adam hagnaðist um 30 elóstig á þessu móti.

Josef endaði með 4,5 vinning í 93. sæti og líka mun ofar en stigaröðin. Josef tapaði 6 elóstigum á mótinu.

Summer Prague Open var opið mót í Prag í Tékklandi. Alls tóku 208 skákmenn þátt en þó aðeins einn stórmeistari en fjöldi titilhafa. Lenka var númer 40 í stigaröðinni, Adam var númer 81 og Josef númer 122.

- Auglýsing -