Aleksandr Domalchuk-Jonasson gerði sitt fimmta jafntefli í röð í lokaumferðinni í dag á opnu móti á Ítalíu, Lignano Sabbiadoro Open 2024. Aleksandr mætti indverskum alþjóðlegum meistara, Kundu Kaustuv (2419).
Aleksandr hafði hvítt og eins og oft áður fékk fína stöðu, betra miðtafl og einhverja sénsa út í endataflið en náði ekki að nýta sér færin. Kannski þarf eitthvað örlítið að skerpa á stílnum en færin eru vissulega til staðar.
Aleksandr endaði mótið með 6 vinninga af 9 mögulegum og var taplaus. Andstæðingar hans flestir sterkir í lokaumferðunum og endar Aleksandr á að hækka um 7 elóstig á mótinu. Hann endaði í 4. sæti með bestu oddastigin af 5 skákmönnum. Hlutskarpastur varð Ilya Martinovici, stigahæsti skákmaður mótsins með 7 vinninga.
Lignano Sabbiadoro Open 2024 var opið mót sem fram fór í bænum Lignano á Ítalíu. Mótið var flokkaskipt, fjórir flokka fóru fram á sama tíma og tefldi Aleksandr Domalchuk-Jonasson í Masters flokki þar sem hann var 8. í stigaröð af 52 keppendum. Stigahæstur keppenda var IM Ilya Martinovici (2439) frá Moldavíu. Fjórir stórmeistarar tóku þátt og fjöldi titilhafa. Tefldar voru 9 umferðir eftir svissneska kerfinu.
















