Íslenski hópurinn á EM ungmenna í Prag stóð sig vel í 8. umferð. Í heildina kom 13,5 vinningur í hús, sem er það mesta til þessa.
Þau Halldóra, Iðunn, Haukur, Pétur, Karma, Birkir, Örvar, Tristan, Jósef, Sigurður Páll, Markús Orri Óskarsson og Adam unnu öll sínar skákir. Katrín Ósk, Katrín María
og Benedikt gerðu jafntefli en aðrir töpuðu. Guðrún Fanney tefldi enn og aftur á toppborðunum í beinni útsendingu en tapaði sinni skák eftir langa og harða baráttu.



Gauti Páll Jónsson tók að sér það hlutverk að vera liðsstjóri hópsins í upphafi umferðar og fórst honum það afar vel úr hendi. Svo vel raunar að vinningunum bókstaflega rigndi inn. Gauti býr að töluverðri reynslu af skákmótum í Tékklandi og það er reyndar ekki svo langt síðan að hann var sjálfur keppandi á EM ungmenna í Prag. Tvisvar í umferðinni gerðist það að Gauti Páll liðsstjóri var stöðvaður af öryggisvörðum á eftirlitsferð sinni um keppnissalina og honum réttur gjafapoki sem var ætlaður keppendum í u18 flokknum og honum um leið þakkað fyrir þátttökuna í mótinu.

Það var mikið öryggi yfir taflmennsku íslenska hópsins í dag og sjálfstraustið skein af keppendum. Nokkrir keppendur, sem höfðu byrjað brösulega á mótinu, náðu í langþráða vinninga og mikil gleði ríkti yfir stúderingaaðstöðunni þegar hver Íslendingurinn á fætur öðrum kom fram og rak hnefann á loft til merkis um sigur í sinni skák.




Mótinu lýkur á morgun þegar 9. umferð fer fram. Hún hefst kl. 11:00 að íslenskum tíma.
Um mótið:
EM ungmenna í skák 2024 fer fram í Prag, Tékklandi. Íslensku fulltrúarnir á mótinu er 23 talsins, sem er metfjöldi. Alls telur íslenski hópurinn í kringum 60 manns enda eru á svæðinu bæði foreldrar, ömmur og afar og ýmsir aðrir áhugasamir fjölskyldumeðlimir. Gríðarlega stór og flottur hópur.
Teflt er í aldursflokkunum u8, u10, u12, u14, u16 og u18.
Fulltrúar Íslands á mótinu eru:

Þjálfarar íslenska hópsins eru Björn Ívar Karlsson, Daði Ómarsson og Ingvar Þór Jóhannesson. Gauti Páll Jónsson er mættur til leiks í seinni hálfleik að lokinni taflmennsku í Póllandi.
















