Vignir Vatnar að tafli.

Eftir dapran dag heilt yfir í gær náðu íslenska þríeykið að vinna allar sínar skákir í áttundu umferð opna San Cristóbal de La Laguna 2024 mótinu á Tenerife sem fram fór í dag. Vignir Vatnar Stefánsson hélt áfram góðu gengi og lagði að velli eldri Fiorito bróðirinn á meðan þeir Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Dagur Ragnarsson unnu gegn stigalægri andstæðingum. Allir höfðu þeir hvítu mennina.

Vignir hafði semsagt hvítt gegn hinum unga IM Joaquin Fiorito. Tefldu var „hraðaður“ drottningaindverji með 2…b6 en Vignir var með vel á hreinu hvernig hvítur ætti best að bregðast við enda hefur hann teflt þennan varíant sjálfur og á móti honum…og gert vídeó um varíantinn á VignirVatnar.is.

Vignir fékk betra tafl og saumaði jafnt og þétt að andstæðingi sínum og vann tiltölulega auðveldan sigur.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson lagði að velli kínverskan kvenstórmeistara Xueyi Li (2213). Aleksandr tefldi mjög hvasst í byrjuninni og nánast valtaði yfir þá kínversku.

Dagur náði í mikinn seiglusigur gegn heimamanninunum Perez Perez (2170). Dagur virtist hafa nokkuð vænlega stöðu á kafla en missti skákina niður í jafnteflislegt endatafl með mislitum biskupum. Með baráttukrafti og stríðsgæfu náði Dagur að snúa skákinni sér í vil og ná í sigur.

Vignir hefur nú 6,5 vinninga af 8 og er í efsta sæti ásamt kanadíska FIDE meistaranum Mike Ivanov. Í lokaumferðinni mætir Vignir stigahæsta manni mótsins, Merab Gagunashvili en hefur hvítu mennina! Mike hefur svart gegn Francisco Fiorito. Alvöru séns hér fyrir Vigni að ná í sigur á alþjóðlegu móti.

Aleksandr hefur 5,5 vinning en Dagur 5 vinninga. Aleksandr mætir svipað stigaháum andstæðingi en Dagur teflir niður fyrir sig.

- Auglýsing -