Ólympíuskákmótið verður sett í Búdapest 10. september nk. og stendur til 22. september. Ísland sendir tvö lið til keppni og fram að móti kynnum við einn fulltrúa á dag. Í dag kynnum við til leiks Iðunni Helgadóttur, sem teflir á sínu fyrsta Ólympíuskákmóti.
Nafn
Iðunn Helgadóttir
Kasparov eða Carlsen?
Magnus Carlsen
Félag
Taflfélag Reykjavíkur
Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú?
Ég tefldi á skákmóti í Króatíu í júlí og er svo á leið á EM ungmenna núna í ágúst. Einnig er ég farin að kíkja yfir byrjanirnar mínar. Ég reyni líka að sofa vel og hreyfa mig á hverjum degi.
Hvaða Ungverjar hafa teflt heimsmeistaraeinvígi í skák?
Peter Leko (opið) og Susan Polgar (kvenna), en ég þekki því miður ekki fleiri.
Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Man. City?
Ég hef ekki hugmynd, en pabbi segir Arsenal.
Hvaða Ungverji var upphafsmaður Búdapest-afbrigðisins í lok 19. aldar? Manstu eftir einhverjum Íslendingum sem hafa teflt það í gegnum tíðina?
Ég veit ekki svarið við þessum spurningum en greinilega er þetta byrjun sem ég þarf að skoða betur.
Bókin á náttborðinu?
Stærðfræði handa 4. bekk náttúrufræðibrautar, seinni hluti (þarf að vinna mér í haginn til að komast til Búdapest).
Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?
Þetta verður í fyrsta sinn.
Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?
Binge-aði A Good Girls Guide to Murder núna um helgina.
Hefurðu teflt á First Saturday-móti – eða öðru móti í Ungverjalandi?
Nei, ég hef aldrei farið til Ungverjalands áður.
Hvernig finnst þér ungverks gúllassúpa?
Mér finnst hún ágæt í hófi.
Hvaða Íslendingur tapaði fyrir tveimur Polgar-systranna á Reykjavíkurskákmótinu 1988?
Ég veit það ekki.
Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?
Indland í opnum og Kína í kvennaflokki.
Donald eða Kamala?
Kamala er skárri.
Besta skák sem þú hefur teflt á Ólympíuskákmóti eða annarri liðakeppni
Ég hef ekki teflt í mörgum liðakeppnum öðrum en deildó, en ég man að ég stóð mig vel á NM skólasveita síðastliðið haust og þar voru nokkrar skemmtilegar skákir tefldar.
Ding eða Gukesh?
Gukesh.
Sterkasti skákmaður, lífs eða liðinn, af ungverskum ættum? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð!
Judit Polgar
Helsta fyrirmynd í skák og af hverju?
Mér fannst mikið til þess koma að hitta Susan Polgar þegar ég var 10 ára og dáist að því hve mikið hún gerir fyrir kvennaskák.
Við höldum svo áfram að kynna Ólympíufarinn – einn á dag!
- GM Vignir Vatnar Stefánsson – opinn flokkur
- GM Guðmundur Kjartansson – opinn flokkur
- GM Hannes Hlífar Stefánsson – opinn flokkur
- GM Helgi Áss Grétarsson – opinn flokkur
- IM Hilmir Freyr Heimisson – opinn flokkur
- GM/FST Helgi Ólafsson – liðsstjóri
- WIM Olga Prudnykova – kvennaflokkur
- WGM Lenka Ptácníková – kvennaflokkur
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – kvennaflokkur
- WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – kvennaflokkur
- Iðunn Helgadóttir – kvennaflokkur
- FM/FT Ingvar Þór Jóhannesson – liðsstjóri
- IA/FM Róbert Lagerman – skákstjóri
- Gunnar Björnsson – FIDE-dindill