Guðmundu Kjartansson að tafli.

Ólympíuskákmótið verður sett í Búdapest 10. september nk. og stendur til 22. september. Ísland sendir tvö lið til keppni og fram að móti kynnum við einn fulltrúa á dag. Í dag kynnum við til leiks Guðmund Kjartansson.

Nafn

Guðmundur Kjartansson

Kasparov eða Carlsen?

Cheerios eða Honey Nut Cheerios?! Bæði betra!

Félag

Taflfélag Reykjavíkur 

Hvernig er þínum undirbúningi (skáklegum, andlegum og líkamlegum) háttað fyrir Ólympíumótið nú? 

Nokkuð hefðbundinn, leysa þrautir og undirbúa byrjanir. Ég stunda Sahaja Yoga hugleiðslu til að halda andlega þættinum í lagi. Líkamlegur undirbúningur felst í því að bera innkaupapoka og fara í heilsubótagöngur.

Hvaða Ungverjar hafa teflt heimsmeistaraeinvígi í skák?

Man bara eftir Peter Leko. Mögulega Susan Polgar?!

Hvað lið verður í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni á eftir Man. City?

Nottingham Forest 

Hvaða Ungverji var upphafsmaður Búdapest-afbrigðisins í lok 19. aldar? Manstu eftir einhverjum Íslendingum sem hafa teflt það í gegnum tíðina?

Ég man það ekki. Líklega Róbert Lagerman og svo tapaði ég fyrir Braga Þorfinnsyni í vel tefldri Búdapest-skák á Íslandsmótinu 2015.

Bókin á náttborðinu?

Lítil bók með ljóðum William Blake sem ég fékk nýlega að gjöf. Annars bíð ég spenntur eftir því að fá bók Sigurbjarnar “Hve þung er þín krúna” í hendurnar. 

Hversu oft hefur þú farið á Ólympíuskákmót?

 2014, 2016, 2018, 2022 og þetta verður mitt fimmta Ólympíumót.

Hvað er það síðasta sem þú horfðir á Netflix (eða annarri sjónvarpsveitu)?

Það kemur ekki oft fyrir að ég horfi á heilu þáttaraðirnar en það gerðist nýlega þegar ég horfði á Superstore á Netflix. Annars hef ég aðeins verið að horfa á Psych og Lögregluhundinn Rex.  

Hefurðu teflt á First Saturday-móti – eða öðru móti í Ungverjalandi?

Ungverjaland er líklega það land sem ég hef oftast komið til. Hef tekið þátt í First Saturday og Kecskemet í allnokkur skipti

Hvernig finnst þér ungverks gúllassúpa?

Mjög fín

Hvaða Íslendingur tapaði fyrir tveimur Polgar-systranna á Reykjavíkurskákmótinu 1988?

Gunnar Björnsson 

Hverja telur þú líklegasta til sigurs á Ólympíuskákmótinu í opnum og kvennaflokki?

Það er alltaf gaman að sjá óvænt úrslit en ætli ég segi ekki Bandaríkjamenn í opnum og Úkraína í kvennaflokki. 

Donald eða Kamala?

Verður spennandi, er ekki með skýra afstöðu.

Besta skák sem þú hefur teflt á Ólympíuskákmóti eða annarri liðakeppni

Góð sóknarskák gegn Toms Kantans tryggði okkur sigur gegn Lettum 2018

Ding eða Gukesh?

Hélt með Ding síðast, held með Gukesh núna.

Sterkasti skákmaður, lífs eða liðinn, af ungverskum ættum? Hér er Google og öll önnur hjálpartæki bönnuð! 

Robert James Fischer

Helsta fyrirmynd í skák og af hverju?

Helgi Ólafsson, vegna þess að hann hefur helgað líf sitt skákinni og gefið mikið af sér. Annars á ég mér margar fyrirmyndir og ég sé líka yngri skákmenn eins og Vignir Vatnar og fleiri sem miklar fyrirmyndir.

Við höldum svo áfram að kynna Ólympíufarinn – einn á dag!

  • GM Vignir Vatnar Stefánsson – opinn flokkur
  • GM Guðmundur Kjartansson – opinn flokkur
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson – opinn flokkur
  • GM Helgi Áss Grétarsson – opinn flokkur
  • IM Hilmir Freyr Heimisson – opinn flokkur
  • GM Helgi Ólafsson – liðsstjóri
  • WIM Olga Prudnykova – kvennaflokkur
  • WGM Lenka Ptácníková – kvennaflokkur
  • Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – kvennaflokkur
  • WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir – kvennaflokkur
  • Iðunn Helgadóttir – kvennaflokkur
  • FM Ingvar Þór Jóhannesson – liðsstjóri
  • IA/FM Róbert Lagerman – skákstjóri
  • Gunnar Björnsson – FIDE-dindill
- Auglýsing -