Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson vann sigur á alþjóðlegu móti sem lauk í dag á spænsku eyjunni Tenerife. Vignir vann stigahæsta keppandann georgíska stórmeistarann Merab Gagunashvili í lokaumferðinni.
Vignir hlaut 7½ vinning í 9 umferðum og hálfum vinningi fyrir ofan næsta mann, kanadíska alþjóðlega meistarann, Mike Ivanov. Átta stórmeistarar tóku þátt í mótinu.
Fyrsti sigur Vignis á alþjóðlegu opnu móti – en örugglega ekki sá síðasti!

Vignir hækkar um 12 stig fyrir frammistöðuna og er nú kominn með 2543 skákstig, langstigahæstur íslenskra skákmanna.
Vignir heldur nú til Kanarí þar sem hann teflir á öðru alþjóðlegu móti. Þaðan heldur svo til Búdapest en þar sem teflir á fyrsta borði landsliðsins á Ólympíuskámótinu sem hefst 11. september nk.
Ingvar Þór mun gera lokaumferðinni betur skil síðar í dag/kvöld.















