Vel sóttur fyrirlestur Helga Áss Grétarssonar fór fram í Miðgarði á mánudaginn. Helgi fjallaði á skemmtilegan hátt um mikilvægi þess að þekkja sjálfan sig sem skákmenn og tók áhugaverð dæmi frá skákferli sínum.
Í kjölfarið var haldið stutt hraðskákmót þar sem Dagur Ragnarsson þekkti sjálfan sig best og hlaut 5,5 vinninga í 6 skákum. Björn Jónsson var annar með 4,5.
Stefnt er að næsta fyrirlestri þann 4. nóvember og verður hann auglýstur sérstaklega.
- Auglýsing -
















