Stefán Steingrímur Bergsson brá sér í skákvíking milli jóla og nýárs og tekur þátt í helgarmóti í Bristol á Englandi. 62 skákmenn taka þátt í þessu 7 umferða opnu móti sem teflt er á fjórum dögum. Tvöfaldir dagar alla daga nema fyrsta daginn!
Í fyrstu umferð mætti Stefán ítalska skákmanninum Matvii Plotnikov (1641). Matvii er að öllum líkindum tvíburabróðir Dmytro sem tefldi á öðru borði í sömu umferð. Þrátt fyrir tiltölulega lág elóstig miðað við Stefán virtist Matvii á tilgerðanlegan hátt glápa upp í loftið eins og hann væri að rifja upp einhverja teoríu í fjórða leik. Sannleikurinn virtist hinsvegar vera sá að Matvii skildi ekki neitt hvað var í gangi en þrátt fyrir það þurfti Stefán að hafa fyrir sigrinum. Gott mál fyrir Stefán sem hefði annars líklega lent í einhvers konar fósturstellingu á sínu hótelherbergi þar sem allskonar lyktarskyn hefðu komið til álykta!
Fín byrjun hjá Stefáni sem er til alls líklegur. Skak.is spáir því að Stefán geri eitt jafntefli við minni spámann, tapi gegn Keith Arkell en vinni aðrar skákir!

















