Ótrúlegar senur áttu sér stað á öðrum keppnisdegi Heimsmeistaramótsins í atskák sem fram fer í New York. Stigahæsti skákmaður heims, Magnus Carlsen, hafði byrjað illa á fyrsta degi og segja má að Carlsen hafi farið úr öskunni í eldinn á keppnidegi númer tvö!
Carlsen hafði byrjað atskákin sögulega lélega. Tveir og hálfur vinningur úr fimm skákum var versta byrjun Carlsen í sögunni. Eftir þessa lélegu byrjun var ljóst að Carlsen þurfti nánast kraftaverk og að öllum líkindum sjö vinninga úr næstu átta skákum til að eiga möguleika á Heimsmeistaratitlinum í atskák.
Carlsen byrjaði í raun þokkalega á degi tvö og var kominn með 2,5 vinning úr 3 skákum en það sem meira var…þá fékk hann aðvörun og sekt fyrir að brjóta „dress code“ hjá FIDE. Carlsen hélt að hann gæti bætt úr því á næsta keppnisdegi en svo var ekki að skipta. Carlsen var gert að bæta úr „gallabuxna“ útliti sínu STRAX ellegar sæta refsingu.
Fór svo að Carlsen sætti sig ekki við þessa afarkosti og mætti ekki til leiks það sem eftir var dags og það sem meira var, hann sagði sig úr mótinu og mun ekki mæta til leiks heldur í hraðskákina!
Skak.is spyr sig, er þetta vísir að einhverskonar uppreisn gegn FIDE…ekki ósvipað því sem Kasparov ásamt fleirum stóðu fyrir á sínum tíma!
Uppgjör Gothamchess:
Uppgjör Hikaru:
Uppgjör Take Take Take
Þess vendingar draga vissulega aðeins áhugann frá gangi mála á mótinu en staðan eftir níu umferðir er þó sú að Volodar Murzin, Jan Krzsztof-Duda, Arjun Erigaisi og Alexander Grischuk deila forystu á mótinu með 7 vinninga úr 9 skákum. Með fjölda sterkra skákmanna í 5-14. sæti með 6,5 vinning er ljóst að spennan verður mikil og engin leið að spá hver ber sigur úr býtum. Eina sem vitað er…er að Carlsen mun ekki verja sinn titil, hvorki í atskákinni né hraðskákinni eftir atburði dagsins!
Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson byrjaði mótið skelfilega með hálfan vinning úr fimm skákum á fyrsta degi. Fyrsta skák dagsins tapaðist hjá Helga en hann vann sig aftur inn í mótið með 2,5 vinningum úr næstu 3 skákum. Helgi er líklegast engan veginn sáttur en mun vafalítið rétta úr kútnum á lokakeppnisdegi og mæta sterkur til leiks í hraðskákina en Helgi er einmitt nýkrýndur Íslandsmeistari í hraðskák!
HM kvenna í at- og hraðskák fer fram á sama tíma en þar er spennan gríðarleg. Ju Wenjun, Harika Dronavali og Humpy Koneru deila forystunni með 6,5 vinning eftir 8 umferðir. Fimm skákkonur hafa 6 vinninga og ljóst að spennan verður gríðarleg á lokakeppnisdeginum!
Boðið er upp á ýmsar beinar útsendingar, hægt er að fylgjast með mótinu á NRK sjónvarpsstöðinni og eins er sýnt beint á rásum Chess.com og Take Take Take svo eitthvað sé nefnt.

















