Margeir að tafli á Rilton. Mynd: Heimasíða mótsins/Lars OA Hedlund

Stórmeistarinn Margeir Pétursson tekur þátt á Rilton Cup sem fram fer yfir áramótin 2024/25. Alls taka 115 keppendur þátt á þessu opna móti og er Margeir númer 25 í styrkleikaröðuninni.

Í fyrstu umferð hafði Margeir hvítt og mætti sænska skákmanninum Jimmy Mardell (2211). hafði Margeir sigur í skákinni og hefur hann svart í 2. umferð gegn indverska kvennstórmeistaranum Savitha Baskar (2329).

Tefld er ein umferð á dag á Rilton Cup og lýkur mótinu 5. janúar

- Auglýsing -