Alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson fékk erfiða pörun í 5. umferð á alþjóðlega mótinu á eyjunni Djerba í Túnis, Djerba Open. Björn mætti efsta manni mótsins, franska stórmeistaranum Paul Velten (2505) sem hafði unnið allar sínar skákir.

Björn hefur aðeins verið að taka til í byrjanataflmennsku sinni og sýndi það af miklum eldmóð í þessari skák. Björn sýndi 99% nákvæmni og tapaði að meðaltali 4 centi-peðum per leik sem er nákvæmni á heimsmælikvarða. Í stuttu máli átti Paul Velten aldrei færi á því að skáka okkar manni!

Úrslitin halda Paul í efsta sæti en Björn er nú í öðru sæti ásamt stórmeistaranum Batur Sambuev og Alsíringnum Tarik Hallal sem er óvænt meðal efstu manna.

Hafi verkefni dagsins verið erfitt þá þyngist það mögulega þegar Björn fær aftur svart og nú gegn reyndum kanadískum stórmeistara, Batur Sambuev. Sambuev hefur meðal annars unnið sér það til frægðar að hafa unnið glæsilegan sigur gegn Wei Yi á Heimsbikarmóti í skák.

- Auglýsing -