Íslenska liðið byrjar nokkuð vel á HM öldungasveita sem fram fer í Prag í Tékklandi. Íslenska liðið vann sinn þriðja 3.5-0.5 sigur í röð og ekki hægt að kvarta undan byrjuninni á mótinu!

Íslenska liðið er orðið ansi reynt á þessum 50+ heims- og evrópumeistaramótum og ætti að óbreyttu að berjast um toppsætin. Liðið er númer 3 í stigaröðinni af alls 54 sveitum.

Viðureign dagsins:

Jón L. Árnason hvíldi í umferðinni, líklegast upptekinn við að skrifast afsökunarbréf til Frostick-fjölskyldunnar eftir fyrstu tvær umferðirnar!

Um þessa pörun skrifaði ritstjórn í gær:

Hér eru kínverskir skákmenn af „gamla kínverska skákskólanum“ sem er oft erfitt að lesa í og geta verið óþægilegir andstæðingar. Sé haldið rétt á spöðunum ættum við þó að fá íslenskan sigur á morgun í þriðju umferðinni!

Segja má að þessi spá hafi að mörgu leiti kristallast á fysta borði. Jóhann Hjartarson hafði svart gegn andstæðingi sem hefði fyrirfram mátt merkja sem hættulegastan fyrirfram! Wang Pin hefur náð um 2460 elóstigum og eftir að því var náð hefur taflmennskan minnkað töluvert en þó ljóst að hættuleg geta er til staðar!

Að mörgu leiti kom á óvart að Jóhann skildi rugga bátnum snemma með því að tefla Modern-byrjun í stað þess að vera traustur og bíða átekta á öðrum borðum. Kannski lýsir þetta ákveðinni ákefð hjá sveitinni að gera eins vel og hægt er og tefla til sigurs!

Segja má að „gamli kínverski skákskólinn“ hafi að mörgu leiti kristallast í 5. leik hvíts.

5.g4!? er auðvitað mjög aggressífur leikur og að mörgu leiti má segja að þegar kínverjar brutust fram á skáksviðið má segja að þeir hafi oft teflt mjög órætt og erfitt að lesa í þá. Wang Pin tefldi skákin af miklum krafti og lék oft á tíðum mjög skemmtilegum taktískum leikjum en svo virðist vera sem Jóhann hafi ávallt verið tilbúinn fyrir höggin, tók þau á kinnina og kýldi til baka. Þessi Muhammed Ali „rope-a-dope“ strategía Jóhanns skilaði að lokum góðum iðnaðarsigri!

Á öðru borði skólaði Margeir Péturson andstæðing sinn fram og til baka eftir öllum kúnstarinnar reglum í Katalan-byrjuninni. Á tímabili var Margeir með allt að því kex-unnið tafl en svartur náði einhvern veginn að sprikla sig út úr því…komst í hróksendatafl peði undir og náði að halda því. Viðsnúningur sem kom sem betur fer ekki að sök!

Á þriðja borði tefldi Þröstur Þórhallsson eins og herforingi gegn máttlausri taflmennsku Yun Guo gegn sikileyjarvörn Þrastar. Hvítur lék einhvern veginn passífum leikjum sem gerðu ekki neitt og fyrr en varði var Þröstur gjörsamlega búinn að taka öll völd á skákborðinu.

Helgi Ólafsson náði í íslenskan sigur á fjórða borði en þurfti að taka töluvert til á borðinu eftir að hafa fengið lítið sem ekkert út úr byrjuninni. Það er nokkuð þekkt að ef þú hleypir Helga í ákveðna „raðtækni“ að þá er yfirleitt nokkuð fyrirséð hver útkoman er!

Niðurstaðan enn og aftur góður 3,5-0,5 sigur og sveitin sjóðheit!

Að loknum 3. umferðum er íslenska sveitin efst ásamt Kazakhstan og Englandi.

Í fjórðu umferð fær íslenska liðið alvöru próf!

Kazakar hafa mjög þétta sveit og hér er komið fyrsta alvöru próf íslenska liðsins. Liðið mætir stigahárri sveit með stigaháa og yngri andstæðinga!

Heimsmeistaramótið í Prag er níu umferðir og verður frídagur 22. febrúar að loknum fimm umferðum en að öðru leiti verður teflt á hverjum degi.

- Auglýsing -