Skák.is bárust þær fregnir að íslenskir fornleifafræðingar fyrir skemmstu komist yfir handrit með skáktengingu. Handritið, sem rekja má aftur til 13. aldar, hefur að geyma ótrúlega lýsingu á skákspili sem var vinsælt meðal víkinga fyrir tæpum átta öldum síðan.

Lýsingin á skákborði sem hefur auka röð af reitum og skemmtilega breytingu í uppstillingu taflmannanna. Í stað þess að hafa hefðbundnu taflmenn, hefur hver maður sérstök viðurnefni og tengingu við norrænu guðina, þar sem Þór gekk sem riddari og Óðinn sem biskup. Jafnvel er talið að svokölluð Víkingaskák eigi sér tengingu í þessa gömlu skák en einn taflmannana sem nefndir voru í handritinu hét Víkingur og hafði sama gang og Víkingurinn í Víkingaskák. Gunnar Freyr Rúnarsson, kom af fjöllum, þegar ritstjórn hafði samband við hann.

Þessi handritafundur gæti hins vegar kollvarpað kenningum um að Lewis-taflmennirnir séu upprunalega frá Íslandi.

- Auglýsing -