Það var sannkölluð skákveisla í Snooker & Pool í Lágmúla þegar VignirVatnar.is bauð til hraðskákmóts nú í enda aprílmánaðar! Mótið var liður í mánðarlegri mótaröð sem hefur skapað frábæra stemmingu meðal skákmanna og komast færri að en vilja!
Í þetta sinn var það stórmeistarinn Hannes Stefánsson sem sýndi gamla og góða takta og tryggði sér sigurinn með 8 vinningum af 9 mögulegum. Það er ekki oft sem Vignir Vatnar nær ekki efsta sæti, en hann lenti að þessu sinni í 2. sæti með 7½ vinning.
Þar sem Vignir fær ekki verðlaun dugði þriðja sætið til þess að fá önnur verðlaun. Í 3. sæti endaði Björn Hólm Birkisson með sterka 6½ vinninga, og Björn Þorfinnsson fylgdi fast á eftir með 6 vinninga í 4. sæti. Tveir Birnir í topp fjórum!

Verðlaunahafar í flokkum:
🥇 Besti keppandi undir 2000 skákstigum:
Kristján Örn Elíasson með 6 vinninga, menn vaða ekki í vélarnar og Jobava-London að gefa!
🥇 Besti keppandi undir 1800 skákstigum:
Ólafur Örn Ólafsson með 5 vinninga, skákmaður á hraðri uppleið!
🥇 Besti keppandi án alþjóðlegra skákstiga:
Friðrik Rafn Arnarson með 3½ vinning.

Þátttakan var góð, keppendur voru í skemmtilegu stuði og Snooker & Pool gaf keppendum tækifæri til að blanda saman mat, drykk og skemmtun ásamt bráðskemmtilegum skákum þar sem ýmislegt gekk á!
Við hlökkum til að sjá alla aftur á næsta móti— nýjir keppendur jafnt sem vanir meistara eru hjartanlega velkomnir!
















