Viðeyjarmótið

    0
    468
    Hvenær:
    20. júlí, 2025 @ 13:00 – 16:00
    2025-07-20T13:00:00+00:00
    2025-07-20T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Viðeyjarstofa
    Viðey
    Ísland
    Tengiliður:
    Gauti Páll Jónsson
    6919937
    Viðeyjarmótið @ Viðeyjarstofa | Reykjavíkurborg | Ísland

    Taflfélag Reykjavíkur heldur skákmót í Viðeyjarstofu í samstarfi við Eldingu og Borgarsögusafn sunnudaginn 20. júlí kl. 13. Mótið er opið öllum áhugasömum og þátttaka ókeypis en greiða þarf í ferjuna.

    Þetta verður fimmta sinn sem mótið verður haldið.

    Frétt mótsins 2021  

    Frétt mótsins 2022

    Frétt mótsins 2023 

    Frétt mótsins 2024

    Tefldar verða 9. umferðir með tímamörkunum 3+2 (3 mínútur á mann og 2 sekúndur á leik) og mótið er opið öllum. Teflt verður á annarri hæð Viðeyjarstofu. Hægt er að kynna sér siglingar viðeyjarferjunnar hér:

    Viðeyjarferjan

    Eftir 5. umferðir verður gert stutt hlé á taflmennsku en þess má geta að glæsileg veitingasala er í Viðeyjarstofu.

    Ekkert þátttökugjald er í mótið, en það þarf að borga sig inn í ferjuna til Viðeyjar:

    Gjald í ferjuna fram og til baka eru 2400 kr. fyrir fullorðna og 1200 kr. fyrir börn 7 – 17 ára í fylgd fullorðinna. Börn 6 ára og yngri sigla frítt. Við minnum á að handhafar Menningarkorts Reykjavíkur fá 10% afslátt í Viðeyjarferjuna og handhafar Gestakortsins (Citycard.is) sigla frítt. Þátttakendur er hvattir til að kaupa miða á elding.is.

    Ferjan fer til að mynda samkæmt áætlun til Viðeyjar klukkan 12:15.

     

    Hámarks keppendafjöldi er 50.

    Verðlaun í mótinu:

    1. 15.000kr
    2. 10.000kr
    3. 5000kr

    Skráningarform

    Þegar skráðir keppendur

    Oddastig (Tie break) í mótinu:

    1.      Bucholz -1

    2.      Bucholz

    3.      Sonneborn-Berger

    4.      Innbyrðis úrslit

    - Auglýsing -