Taflfélag Garðabæjar

Skemmtileg skáknámskeið fyrir krakka verða haldin í sumar í Miðgarði í Garðabæ fyrir börn í 1-4 bekk.

 

  • Vika 26: 23.-27. júní – frá kl. 13 til 16.
  • Vika 27: 30. júní-4. júlí – frá kl. 13 til 16.
  • Vika 28: 7.-11. júlí – frá kl. 13 til 16.

Hvert námskeið stendur í 5 daga, hálfan daginn eftir hádegi frá kl. 13 til 16. Þetta námskeið er opið fyrir börn í 1. til 4. bekk.

Umsjón með námskeiðunum hefur Lenka Ptácníková.

Lenka er stórmeistari kvenna í skák, margfaldur íslandsmeistari kvenna og hefur mikla reynslu af skákþjálfun barna.

Krakkarnir munu læra undirstöðuatriði í skáklistinni auk þess verður farið í leiki og margt skemmtilegt.

Verð fyrir hverja viku er 10.900 kr. Systkinaafsláttur í boði. 20%. Miðað er við að amk. 6 krakkar séu í hverjum hóp en mest 12.

Skráning er á slóðinni https://abler.io/shop/tg

Krakkarnir þurfa að hafa með sér vatnsbrúsa og nesti.

Nánari upplýsingar í síma 6997963 eða í netfangiðlenkaptacnikova@yahoo.com

- Auglýsing -