Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson tók þátt í lokuðum GM-flokki í Przeworsk í Póllandi í liðinni viku. Mótið ber nafnið „Chess week in Przeworsk“ og tók viku eins og nafnið gefur til kynna. Hannes náði sér ekki á strik á mótinu og endaði með 4 vinninga af 9 mögulegum. Mótið var nokkuð sterkt og Hannesar var númer sjö í stigaröðinni.
Eitt tap kom í 3. umferð gegn indverskum skákmanni þar sem Hannes lék klaufalega af sér. Seinni part móts var Hannes greinilega kominn betur í gang, tefldi mjög traust en náði ekki að fá nógu hættuleg færi í skákunum og enduðu þær allar með jafntefli, engin stutt og ótefld jafntefli þó þegar leið á mótið. Mögulega eina mótið á atvinnumannaferli Hannesar þar sem hann vinnur ekki skák. Engu að síður var eins og áður sagði klár stígandi í taflmennskunni og Hannes vonandi búinn að losa ryðið og sýnir hvað í honum býr á Blönduósi.
Skákir Hannesar (ýtið á punktana til að velja skák):















