Afmælishátíð Skáksambands Íslands fer fram 13.-22. júní nk. á Blönduósi. Hápunktur hátíðarinnar er Icelandic Open – 100 ára afmælismót SÍ. Skáksamband Íslands var stofnað á Blönduósi, 23. júní 1925. Því þótti stjórn SÍ mjög viðeigandi að halda afmælishátíðinna þar! Sjálft Íslandsmótið verður haldið á Krúttinu 15.-21. júní en ýmislegt annað verður í gangi!

Teflt verður við glæsilegar aðstæður í Krúttinu.

Segja má að hátíðin hefjist 13. júní þegar Smábæjarmótið í skák fer fram í kringum Smábæjarleikana í fótbolta! Þar verður ungmennum sem spila fótbolta á mótinu boðið að tefla sér til gamans og til verðlauna. Mótið hefst kl. 18.

Þann 14. júní fer svo fram 100. aðalfundur Skáksambandsins í bíósal félagsheimilisins. Gunnar Björnsson sem hefur verið forseti SÍ lengst allra (16 ár) gefur ekki kost á sér til endurkjörs. Tveir frambjóðendur keppa um embættið. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, núverandi varaforseti SÍ og landsliðskona, og Kristján Örn Elíasson, alþjóðlegur skákdómari og útvarpsmaður.

Kl. 13 á sunnudagin verður svo Bikarsyrpa stúlkna. Fjöldi stúlkna mætir á Blönduóss til að taka þar þátt í stúlknamóti.

Ivan Sokolov mætir til leiks!

Þann 15. júní hefst svo Icelandic Open – 100 ára afmælismót SÍ. Óhætt er að segja að mótið sé vel skipað. Þar taka þátt flestir sterkustu skákmenn Íslands. Stigahæstur keppenda er goðsögnin Ivan Sokolvov en stigahæstur Íslendinga er Vignir Vatnar Stefánsson. Efsti Íslendingurinn verður íslandsmeistari. Einnig er keppt um íslandsmeistaratitil kvenna, öldunga (+65) og ungmenna (u22). Heldur betur skemmtileg skákhátið framundan!

Öllu verður þessi vel skilað vel á Skák.is á meðan móti stendur!

Keppendalistinn

Ýmislegt verður í gangi á meðan móti stendur. Skák Pub Quiz verður 16. júní og skákpíla fer fram 18. júní. Mót fyrir heimamenn og aðra áhugasama verður haldið 20. júní og efnt verður til golfmóts fyrir skákáhugamenn þann 19. júní. Þann 21. júní verður svo hátíðarkvöldverður þar sem forseti Íslands, Frú Halla Tómasdóttir, verður heiðursgestur og hátíðinni lýkur 22. júní með Blönduós Blitz! Skyldumæting fyrir skák- og skákáhugamenn.

Heldur betur skákhátíð framundan – fylgist með á skak.is!

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -