Þrettánfaldi Íslandsmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson er eini keppandinn með fullt hús, fjóra vinninga að loknum þriðja keppnisdegi á Blönduósi. Afmælismót Skáksambandsins virðist ætla að verða æsispennandi en tveir skákmenn hafa 3,5 vinning og fjöldi skákmanna 3 vinninga.
Hannes lagði Aleksandr Domalchuk-Jonasson að velli í vel útfærðri skák en Vignir Vatnar slapp með skrekkinn gegn Bárði Erni Birkissyni og hafa þeir báðir 3,5 vinning eftir innbyrðis jafnteflið. Guðmundur Kjartansson gerði jafntefli við Ivan Sokolov sem hefur ekki náð sér á flug enn á þessu móti.
Á efsta borði hafði Bárður Örn hvítt gegn Vigni. Vignir er með nokkuð gott skor gegn Bárði en Bárður að sama skapi traustur með hvítu. Vignir reyndi að grugga vatnið en á endanum fann hann ekki nægjanlega vænleg færi og tók of mikla áhættu. Bárður var klár í baráttuna og stóð vel þegar Vignir tók skysama ákvörðun og bauð jafntefli með verra tafl en Bárður var tímanaumur. Bárður endaði á að taka boðinu, náði ekki að meta stöðuna í tíma og jafntefli niðurstaðan.

Hannes náði í enn einn sóknarsigurinn á öðru borði og hefur nú fullt hús. Skákir Hannesar hafa þróast þannig að hann hefur bullandi frumkvæði og hefur náð að sigla því heim.
Kóngur svarts var strandaglópur á miðborðinu með þungu mennina á borðinu. Sasha kom kóngnum ekki í skjól áður en Hannes opnaði stöðuna með hnitmiðuðum peðsleikjum. Vissulega hefði Hannes getað klárað fyrr en sigurinn aldrei í hættu.
Guðmundur Kjartansson náði nokkuð öruggu jafntefli gegn Sokolov. Spurningin er þó hvort að Guðmundur hefði átt að selja sig dýru verði tveimur peðum yfir þar sem byrjun hans á mótinu í fyrstu tveimur umferðunum var undir pari. Mögulega skák sem Guðmundur lítur til baka á og sér eftir að hafa ekki reynt að vinna.

Björn Þorfinnsson virtist eiga nokkuð náðugan dag gegn Benedikt Þórissyni. Afbrigði hvíts í Ítalanum virtist sauðmeinlaust og Björn aldrei í neinum vandræðum með að sigla vinningnum heim.

Bragi bróðir Björns lenti í öllu meiri vandræðum gegn Josef Omarssyni. Jose fékk betra eftir byrjunina með svörtu en á einhverjum tímapunkti virtist hann „redúsera primitíft“ og Bragi nýtti reynslu sína til að sleppa í endatafl peði yfir þar sem hann yfirspilaði ungan andstæðing sinn.
Vídeó-samantekt 4. umferðar:
Úrslit 4. umferðar:
Staðan eftir 4 umferðir:

Pörun 5. umferðar:

Ítarlegar verður gerð grein fyrir skákum umferðarinnar síðar í kvöld þegar fréttin verður uppfærð.
- Beinar útsendingar á lichess (15 mínútna töf)
- Mótið á chess-results

















