Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson er enn efstur Íslendinga að loknum löngum tvöföldum keppnisdegi á opna Íslandsmótinu í skák á Blönduósi. Það væri eitthvað fallegt við handritið ef að þrettánfaldi Íslandsmeistarinn, Hannes Hlífar, myndi taka enn einn titilinn á 100 ára afmælismóti Skáksambands Íslands. Til þess að gera það þarf Hannes þó að klára mótið vel en hann er efstur með 5 vinninga ásamt Moldóvanum Ivan Schitco.

Ljóst er þó að nóg er eftir af mótinu. Aðeins hálfum vinningi á eftir Hannesi koma þeir: Aleksandr Domalchuk-Jonasson, Vignir Vatnar Stefánsson, Bárður Örn Birkisson og Guðmundur Kjartansson allir með 4,5 vinning. Í hópi skákmanna með 4 vinninga er svo Ivan Sokolov sem þarf á góðum endaspretti að halda og á eftir að tefla við flesta af efstu keppendum mótsins!

Lítum yfir gang mála á þessum fjórða keppnisdegi mótsins á Blönduósi!

Vignir Vatnar og Hannes tefldu mikilvæga skák á efsta borði í morgunumferðinni. Vignir hafði hvítt og hér ákveðið færi á að ná góðri fótfestu í efsta sætinu. Skemmst er frá því að segja að Vigni varð lítið ágengt með hvítu mönnunum og var líklegast feginn þegar hann kom auga á þráleik í miðtaflinu. Hannes hefði mögulega getað valið að tefla áfram en hann ákvað að rugga engum bátum, jafnteflið góð úrslit fyrir hann og ákveðin orkusparnaður í gangi fyrir seinni umferðina.

Bárður var búinn að eiga fínt mót og á sama tíma hafði Ivan Schitco svona hálf læðst meðfram toppbaráttunni eftir tap gegn Aleksandr Domalchuk-Jonassyni í þriðju umferð. Bárður tefldi fína skák lengst af en var kominn með örlítið verra endatafl þegar tímahrakið kostaði hann skákina.

38…e4?? var skelfilegur leikur og hinn einfaldi 39.Rd4 rýfur valdið á biskupinn á d8 og Bárður gafst upp. Í gær kostaði tímahrakið hálfan vinning gegn Vigni og ljóst að Bárður þarf að vinna bug á „krónískum“ tímahraksvandræðum til að taka næsta skref á sínum skákferli.

Guðmundur lagði Hilmi að velli á þriðja borði. Hilmir gerði sig sakan um mjög gróf stöðuleg mistök snemma í byrjuninni.

11…d4? veikti löngu línuna og ýmsa reiti og veikt auk þess d-peðið. Guðmundur fékk yfirburðatafl með einföldum leikjum og skatturinn af mistökunum varð fljótlega peð í hafið. Úrvinnslan tók sinn tíma en var aldrei í hættu.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson tefldi þéttingsfasta skák gegn stórmeistaranum Braga Þorfinnssyni. Hann fann fínan „fréttablaðsleik“ til að fá unnið tafl.

27.Bxf6! var ansi skemmtilegur, einn skemmtilegasti Bf6 leikur sem ritstjóri hefur séð lengi.

Fyrir margt löngu lenti Ivan Sokolov næstum í skemmtilegum Bf6 leik en þá missti andstæðingur hans af 43.Bf6!! rétt eftir aldamótin síðustu, einmitt hér á Íslandi!

Aleksandr í fínasta formi að því er virðist, jafnvel landsliðsformi!

Góð fjölskyldumferð!

Óhætt er að segja að 5. umferðin hafa verið afladrjúg fyrir Lenku Ptacnikovu og syni hennar Adam og Josef en þau unnu öll!

Adam tefldi gegn Birni á 5. borði og fékk snemma ógnarsterkan svartreitabiskup úr byrjuninni. Adam náði að nýta hann með hættulegum frelsingja á a-línunni og kannski táknrænt að í lokin réði samstarf þeirra úrslitum…þó eftir sviptingar og tímahrak, það er aldrei hægt að vinna Björn auðveldlega!

Josef náði vinningi gegn Símoni Þórhallssyni en hann þurfti að standa af sér stórhættulega sókn Símons í fjögurra peða árásinni.

Hér valdi Símon vitlausan leik. 31.Rxf6+? og eftir 31…Rxf6 32.Dg5. Betra hefði verið 31.Rg5+! fxg5. 32.Dxg5, sama staða nema riddarinn er ekki kominn í vörnin og hvítur stendur líklega til vinnings.

Josef náði að klára vörnina og sigla vinningnum heim og það mátti greina stolt hjá mömmunni þegar synirnir voru að sigla vinningunum í land en Lenka hafði þá þegar lagt Sigurbjörn Hermannsson að velli.

Úrslit 5. umferðar:

Staðan eftir 5 umferðir:

Pörun 6. umferðar:

Seinni umferðin varð aðeins rólegri, jafntefli urðu á efstu tveimur borðunum. Hannes fékk örlítið betra gegn Guðmundi en ákvað að taka litla sénsa. Guðmundur fékk þó smá séns á að snúa taflinu eftir slappan leik, Hc3 hjá Hannesi. Augnablikið hvarf og staðan einfaldaðist of mikið og jafntefli niðurstaðan.

Skák Aleksandrs og Vignis náði aldrei flugi og jafntefli rökrétt niðurstaða:

Ivan Schitco er á ágætis flugi og vann báðar skákirnar í dag, þá seinni gegn Adam. Bárður Birkisson fórnaði manni og blés til sóknar gegn Stefáni og fann margar skemmtilega leiki og fórni í framhaldinu og knésetti Stefán í skemmtilegri skák.

Skák umferðarinnar var vafalítið viðureign Benedikts Þórissonar og Ivans Sokolov. Sokolov seldi sig dýrt með svörtu og rann líklegast kalt vatn milli skinns og hörunds þegar Benedikt skellti á hann sterkum riddaraleik sem vann skiptamun. Ivan þurfti að hafa sig allan við og náði að setja skákina í lausamölina þar sem hann náði að plata Benedikt og mátaði að lokum…ef til vill eilítið ósanngjarnt en svona er skákin stundum!

Úrslit 6. umferðar:

Staðan eftir 6 umferðir:

Pörun 7. umferðar:

Margar skemmtilegar viðureignir framundan á morgun!

Vídeó-samantekt 5. og 6. umferðar:

- Auglýsing -