Þriðja umferð Heimsdeildarinnar í netskák fór fram síðastliðna helgi. Team Iceland mætti ógnarsterku og fjölmennu liði Úkraínumanna. Úkraína er líklega með sterkasta liðið í deildinni um þessar mundir og sýndi það sig vel þegar þeir völtuðu yfir Rússa 129.5 – 58.5 fyrir skemmstu.

Bæði lið tefla í leifturskákinni og hraðskákinni og var því teft í báðum deildum.

Leifurskákin

Teflt var á 35 borðum í leifturskákinni, sem er mesti fjöldi sem Team Iceland hefur stillt upp í þeirri keppni. Lið Úkraínu er ógnarsterkt í leifturskák, enda unnu þeir deildina í fyrra.

Keppnin var nokkuð jöfn framan af, en lið Úkraínu seig að lokum fram úr og landaði 40.5 – 29.5 sigri.

Staðan í leifturskákinni

Hraðskákin

Team Iceland stillti upp mjög öflugu liði í hraðskákinni og var ánægjulegt að sjá hversu margir nýliðar mættu til leiks. Lang stigahæstur nýliða var stórmeistarinn Jóhann Hjartarson sem mætti ógnarsterkum Úkraínumanni á 1. borði.

Teflt var á 50 borðum í hraðskákinni sem er mesti fjöldi sem lið Íslands hefur sent til leiks í keppninni. Lið Úkraínu taldi þó öllu fleiri keppendur en alls voru 30 manns á varamannabekknum þeim megin.

Lið Úkraínu var því miður öllu sterkara að þessu sinni, en meðalstig þeirra voru 2131 gegn 1993 meðalstigum Íslendinga. Úkraínumenn voru því heldur starkari á nánast öllum borðum og unnu nokkuð öruggan 64.5 – 35.5 sigur.

Úkraínumenn voru stigahærri á nánast öllum borðum.
Staðan í hraðskákinni

NÆST Á DAGSKRÁ

Sunnudaginn 4. nóvember kl. 18 mætum við liði Rússlands! Teflt verður í báðum deildum, Leiftur- og hraðskák. Rússar eru með fjölmennasta liðið í deildinni og geta mannað gríðarlega öflug og fjölmenn lið sýnist þeim svo. Það er því mikilvægt að við mætum til leiks með eins fjölmennt lið og mögulegt er því þótt Rússar séu með afar öflugt lið, þá eru þeir ekki alltaf að mæta með sína öflugustu menn. Lið Íslands á því ágæta möguleika á að vinna afar merkilegan sigur gegn Rússum.

Þegar þeirri viðureign er lokið fer fram stutt viðureign við Kanada en þar verður tefld Leifturskák og hefst hún kl. 19. Kanada teflir í þriðju deildinni í hraðskákmótinu en leifturskákin er ekki deildaskipt þannig að endrum og eins teflum við tvær leifturskákviðureignir í sömu vikunni.

DAGSKRÁIN Í VETUR (ÁÆTLUN)

v/hefst v/lýkur Vika nr. Umferð Teflum við Fer fram
01. okt 07. okt 1 1 Argentina Live Chess 07. okt kl. 20
08. okt 14. okt 2 2 Srbija Tim 14. okt kl. 18
15. okt 21. okt 3 Frí
22. okt 28. okt 4 3 Team Ukraine 28. okt kl. 18
29. okt 04. nóv 5 4 Team Russia og Team Kanada (Bullet) 04. nóv kl. 18
05. nóv 11. nóv 6 Frí
12. nóv 18. nóv 7 5 Ecuador Live Chess
19. nóv 25. nóv 8 6 Team Slovakia
26. nóv 02. des 9 Frí
03. des 09. des 10 7 Team Peru
10. des 16. des 11 Adjustments
17. des 23. des 12 8 Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu
24. des 30. des 13 Frí
31. des 06. Jan 14 9 Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu
07. Jan 13. Jan 15 Frí
14. Jan 20. Jan 16 10 Úrslit 4 eftstu og 4 neðstu
21. Jan 27. Jan 17 Adjustments

 

TENGLAR

  • Allar viðureignir Team Iceland til þessa: Hér
  • Meðlimir Team Iceland: Hér
  • Leifturskákin, staða og pörun: Hér
  • Hraðskákin, staða og pörun: Hér
  • Reglur LCWL: Hér
- Auglýsing -