Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson er enn efstur Íslendinga að loknum sjö umferðum á Íslandsmótinu í skák. Þeir Vignir Vatnar, Aleksandr Domalchuk-Jónasson náðu honum þó að vinningum og eru jafnir honum ásamt Moldóvanum Ivan Schitco með 5,5 vinning. Ivan og Hannes gerðu innbyrðis jafntefli en Vignir og Aleksandr unnu sínar skákir

Hannes hafði svart gegn Ivan Schitco á efsta borði. Moldóvski stórmeistarinn blés til sóknar með nýjunginni 13.He3 í spænska leiknum. Sóknin bar ávöxt og Ivan vann hreinan skiptamun af Hannesi.
Hér urðu kaflaskipti í skákinni. Vopnaskakið hafði minnkað og staðan orðin stöðugri og einfaldari. Þrátt fyrir að vera skiptamun undir var það Hannes sem tók öll völd á borðinu og ýtti hvíta liðsaflanum aftar og aftar á borðið. Niðurstaðan varð þráleikur en á einum stað í lokin hefði Hannes jafnvel getað haldið áfram að byggja upp pressu á hvítu stöðuna.
Mikil seigla hjá Hannesi og þessi hálfi punktur gæti reynst mikilvægur þegar uppi er staðið!

Á öðru borði var stórmeistaraslagur á milli Vignis Vatnars og Guðmundar Kjartanssonar. Lítið mátti á milli sjá nánast alla skákina. Staðan í jafnvægi og virtist stefna í langa baráttu en jafntefli líklegustu úrslitin. Með einhverri seiglu náði Vignir að snúa á Guðmund í endataflinu og virtist úrvinnslan hjá Vigni ansi góð og hann náði að láta umframpeðið telja!
Með sigrinum jafnaði Vignir efstu menn að vinningum og kom sér í fína stöðu.

Á þriðja borði var Aleksandr Domalchuk-Jonasson í stórkostlegum vandræðum snemma eftir byrjunina gegn Bárði Erni Birkissyni. Á einu augnabliki átti Bárður „killer“ í stöðunni
Hér hefði 16.Dg4! farið langt með að klára dæmið. Mögulega missti Bárður af tilfæringunni Bf8-h6-d2 sem lokar d-línunni. Sasha komst inn í skákina og náði að landa sigri, mikilvægum sigri!
Hannes, Ivan Schitco, Vignir Vatnar og Aleksandr Domalchuk-Jonasson eru því hinir fjórir fræknu eftir sjö umferðir og í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn verða þeir Hannes, Vignir og Aleksandr að teljast líklegastir!
Fjölmargar skemmtilegar skákir litu dagsins ljós í umferðinni. Ivan Sokolov er greinilega ryðgaður en hann sér samt um flétturnar…aðspurður sagði hann þó „tjahh andstæðingarnir sjá eiginlega um flétturnar!“
Hér fann Ivan flotta vinningsleið gegn Gerghönu.

34.Hxd6! er fallegt gegnumbrot í stöðunni! 34…cxd6 35.c7 Hc5 36.Rxa6 Hc1 37.b4 Ke7 38.Rc5! og svartur gafst upp.
Úrslit 7. umferðar:

Staðan eftir 7 umferðir:

Vignir og Aleksandr eru efstir í ungmennaflokki, Lenka er efst í kvennaflokki og Áskell er efstur öldunga.
Pörun 8. umferðar:

Margar skemmtilegar viðureignir framundan á morgun.
Vídeó-samantekt 7. umferðar:
Myndir:







- Beinar útsendingar á lichess (15 mínútna töf)
- Mótið á chess-results

















