Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson náði sér í sinn annan Íslandsmeistaratitil í skák þegar hann tryggði sér sigur á opna Íslandsmótinu í skák á Blönduósi. Lokaumferðin var dramatísk, Aleksandr tapaði snemma gegn Sokolov og færi opnuðust fyrir Braga Þorfinnsson og Vigni. Þegar leið á leit út fyrir að við værum á leiðinni í fjögurra manna aukakeppni en Vignir sýndi mikla seiglu í hróksendatafli og kláraði dæmið.
Nánar verður fjallað um lokaumferðina hér á Skak.is síðar í dag/kvöld
- Beinar útsendingar á lichess (15 mínútna töf)
- Mótið á chess-results
- Auglýsing -













