Akureysku undrabörnin fyrrverandi og félagarnir CM Halldór Brynjar og Stefán Steingrímur Bergsson hafa lokið leik á alþjóðlega mótinu á Spáni. Enginn sigur kom í tefldu tafli í síðustu tveimur umferðunum en Halldór fékk frían vinning í lokaumferðinni.
Í áttundu umferð komu tvö töp, annars vegar Stefán með svart gegn CM Aaron Claros (2250) og hinsvegar Halldór með hvítt gegn Adrian Milan (2179) sem er FIDE meistari.
Stefán tapaði svo fyrir Albert Sala (2215) í lokaumferðinni en andstæðingur Halldórs, Victor Buiza (2184) mætti ekki til leiks.
Stefán skildi 14 elóstig eftir í sólinni en Halldór Brynjar náði að tana sig upp sem samsvarar 9 elóstigum.
- Upplýsingasíða mótsins (úrslit, paranir o.fl.)
- Skákir á lichess (bara efstu borð)
- Auglýsing -
















