Alþjóðlegu meistararnir Hilmir Freyr Heimisson og Dagur Ragnarsson luku í gær taflmennsku í Marshall skákklúbbnum Í Nýju Jórvík á „Marshall Summer Six Day„. Dagur vann sína skák og endaði mótið taplaus en Hilmir gerði stutt jafntefli í lokaumferðinni.
Hilmir hafði hvítt í lokaumferðinni gegn Rose Atwell, 16 ára efnilegra heimastelpu. Jafntefli var samið í miðtaflinu í drottningarbragði.
Hilmir endaði því með 4,5 af 9 í þessum flokki, 50% árangur og lækkar um 8 elóstig á mótinu.
Hér að neðan eru allar skákir Hilmis á mótinu, ýtt á punktana til að velja skákir:

Flokkur Dags:

Innsláttar á skák Dags í lokaumferðinni (IM-e var ekki sýndur beint) virðist hafa eitthvað misfarist og vantar á endann á skákinni. Dagur vann úr traustri Petroffs-vörn.
Dagur endaði með 6 vinninga úr umferðunum 9 og var taplaus. Árangurinn skilaði -1 stigi á elóstigum og því um hálfgerðan varnarsigur að ræða, sérstaklega gegn fótgönguliði ungra og efnilegra skákmanna.
Búið er að slá inn allar umferðirnar þó vanti á skákina í lokaumferð eins og áður segir. Hægt er að ýta á punktana til að velja skákir.

Þetta mót vafalítið fín reynsla fyrir strákana, mikið um hörkuskákir. Svona mót gefa samt ekki mikið stigalega og einnig spurning hvort ekki eigi frekar að velja GM-grúppur frekar en að vera „skotmark“ í IM-grúppum.
- Mótið á lichess (velja IM-C fyrir Hilmi og IM-E fyrir Dag)
- Heimasíða mótsins

















