Aleksandr Domalchuk-Jonasson kláraði með stæl á 2025 Asian Dragons International Chess Tournament. 27 tóku þátt í 9 umferða opnu móti og var Aleksandr stigahæstur. Skemmst er frá því að segja að okkar maður vann allar 9 skákirnar og steig ekki feilspor.

Skákirnar má nálgast á livecloud tenglinum hér að neðan með því að velja viðkomandi umferð. Aleksandr skiljanlega alltaf á efsta borði.

Í lokaumferðinni vann Sasha peð með Bxh7 trikki en þurfti að hafa töluvert fyrir því að halda stjórn á stöðunni vegna veikleika á hvítu reitunum. Tæknilegi hlutinn vafðist ekki fyrir Sasha sem fyrr og hann náði að klára fulla húsið.

Fyrir þetta hækkar Sasha um 7,3 elóstig og vonandi ágætis upphitun fyrir komandi verkefni!

- Auglýsing -