Þremur umferðum er nú lokið á hinu árlega Czech Open í Pardubice þar sem margir íslenskir skákmenn hafa teflt í gegnum árin. Að þessu sinni taka þau Lenka Ptacnikova, Adam Omarsson og Josef Omarsson þátt á mótinu í A-flokki auk þess sem Sigurbjörn Hermannsson teflir í B-flokki á þessu flokkaskipta móti.
Alls taka 204 skákmenn þátt í A-flokki. Adam (2232) er númer 89 í stigaröðnni, Josef (2120) er númer 148 en Lenka (2115) er númer 154. Sigurbjörn (1928) er númer 115 í stigaröðinni í B-flokki.
Lenka hefur staðið sig best íslensku keppendanna til þessa og fengið erfitt prógram. Í fyrstu umferð gerði Lenka jafntefli við alþjóðlega meistarann Martin Cerveny (2317) en tapaði svo gegn GM Bogdan Lalic í 2. umferð. Í þriðju umferð vann Lenka gegn öðrum tékksneskum alþjóðlegum meistara Marek Mica (2383). Í dag mætir Lenka CM Michael Miazhynski (2288) frá Austurríki.
Josef er nokkurn veginn á pari, hefur tapað gegn tveimur stigahærri og sterkari skákmönnum en vann skákina sem hann tefldi niður fyrir sig og hefur 1 vinning. Adam hefur ekki byrjað vel, hefur hálfan vinning og bara teflt niður fyrir sig það sem af er.
Sigurbjörn hefur 1,5 vinning í B-flokki og er sá árangur að skila stigagróða eins og er.
Tvöföld umferð var tefld í gær en að öðru leyti verður tefld ein umferð á dag til loka móts, níu umferðir alls.
- Mótið á chess-results
- Skákir á lichess (efstu 28 borð)















