Alþjóðlegu meistararnir Dagur Ragnarsson og Hilmir Freyr Heimisson eru mættir til leiks á SixDays Budapest sem eins og nafnið gefur til kynna er teflt á sex dögum. Þrír af keppnisdögunum eru svokallaðir „tvöfaldir dagar“.

Báðir tefla þeir í GM flokki. Dagur er í GM-A flokknum og Hilmir í GM-C flokknum.

GM-A

Dagur hóf mótið á tapi með hvítu mönnunum í gær. Miðtaflið var lengst af í jafnvægi en Dagur lenti í smá vandræðum og missti aðeins tök á samspili manna sinna og varð að gefa mann fyrir tvö peð sem reyndist ekki nóg. Indverki FIDE-meistarainn hélt stjórn á stöðunni þrátt fyrir ágætis sprikl frá Degi.

Í fyrri skákinni í dag hafði Dagur hvítt og kvittaði fyrir tapið í gær gegn öðrum Indverja. Dagur yfirspilaði andstæðing sinn í endatafli þar sem sterkt frípeð á e-línunni var í aðalhlutverki.

Þriðja umferð er að hefjast og þar hefur Dagur svart gegn þýskum FIDE-meistara Robert Stein.

GM-C

Hilmir byrjaði eins og Dagur á tapi í skák sem var ekki nógu vel útfærð. Hvítur fékk þægilegt rými strax og virtist Hilmir yfirspilaður í þessari skák.

Í fyrir skákinni í dag gegn stigahæsta keppenda mótsins missti Hilmir niður mjög vænlega stöðu og endaði á að tapa skákinni.

Hilmir reynir að rétta úr kútnum í þriðju umferð sem er að hefjast en þar hefur hann svart gegn Indverjanum Vivaan.

- Auglýsing -