Stórmót TR og Árbæjarsafns 2025

    0
    433

    Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 30. ágúst. Mótið gefur einstakt tækifæri til að takast á við skákgyðjuna í sögulegu umhverfi Árbæjarsafns.

    Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl. 14. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik (4+2). Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr.

    Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.Þátttökugjald er greitt með því að greiða aðgangseyri inn á safnið samkvæmt gjaldskrá Árbæjarsafns. Frítt er fyrir handhafa Menningarkortshafa Reykjavíkurborgar (greitt einusinni), öryrkja og börn 17 ára og yngri. Þátttökugjaldið er greitt við inngang safnsins. Teflt er í Kornhúsinu, en hér má sjá upplýsingar um keppnisstað.

    Mótið er eitt af fjölmörgum sem T.R heldur í samstarfi við Reykjavíkurborg, en Viðeyjarmótið og Árbæjarsafnsmótið eru haldin í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur.

    Óskað er eftir því að keppendur skrái sig í gegnum hefðbundið skráningarform.

    Skráningarform 

    Þegar skráðir keppendur

    Verðlaun skiptast eftir Hort kerfi. Oddastigaútreikningur í mótinu:

    1. Bucholz -1
    2. Bucholz
    3. Innbyrðis úrslit
    4. Sonneborn-Berger
    - Auglýsing -